Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » Að vera matsmaður

Vertu matsmaður í 7. rannsóknaáætlun ESB

Hvernig er hægt að gerast matsmaður í 7. rannsóknaáætlun ESB? 

Íslenskt vísinda- og fræðafólk er hvattir til að kynna sér þann möguleika að skrá sig sem matsmann í 7. rannsóknaáætlun ESB. Að meta umsóknir er áhrifaríkasta aðferðin til að fá innsýn í umsóknarferlið innan rannsóknaáætlunar ESB.

Rannís mælir með því, að um leið og fólk skráir sig í gagnagrunninn, sendi það tilkynningu og ferilskrá sína til viðkomandi landstengils hjá Rannís, sem getur þá látið vita hjá samstarfsaðilum í Brussel að fær íslenskur matsmaður hafi skráð sig, og hvatt til þess að hann sé nýttur í næsta matsferli. Þetta skiptir máli, þar sem þeir sem stjórna matinu í Brussel, þurfa að skipta út fjórðungi matsmanna hverju sinni, þannig að alltaf er þörf á góðu fólki og ábendingum um það. Ákveðin eftirspurn er líka eftir matsmönnum frá smærri löndum, þannig að það getur verið sterkt að vera Íslendingur.

Í stuttu máli þá greiðir framkvæmdastjórnin 450 € á dag í þóknun fyrir matsstörfin, þá daga sem þarf að dvelja í Brussel við matið. Stundum er matið framkvæmt í heimalandi og einungis þarf að fara til Brussel á samráðsfund í lokin. Einnig er greiddur ferða-  og uppihaldskostnaður.

Ef smellt er á krækjuna https://cordis.europa.eu/emmfp7/index.cfm opnast gluggi þar sem hægt er að skrá sig sem matsmann í 7. rannsóknaáætluninni.


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<