Fréttir 7 RÁ
12.1.2009
Evrópusamvinna á Háskólatorgi 15. janúar 2009
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 15. janúar 2009 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Sameiginleg upplýsingasíða verður einnig opnuð á slóðinni www.evropusamvinna.is
Samstarf og áætlanir sem kynntar verða á Háskólatorgi:
7. rannsóknaáætlun ESB
Menntaáætlun ESB
Evrópa unga fólksins
EURES - evrópsk vinnumiðlun
Enterprise Europe Network
Norðurslóðaáætlun
Euroguidance
eTwinning - rafrænt skólasamstarf
PROGRESS - jafnréttis- og vinnumálaáætlun
Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum
Almannavarnaráætlunin
CIP nýsköpunaráætlun
COST vísinda- og rannsóknasamstarf





English

