Fréttir 7 RÁ
14.1.2010
Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010
Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Evropusamvinnu.is er ætlað að vera fyrsta stopp fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja.
Eftirfarandi áætlanir og þjónustuveitur verða kynntar á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar nk.:
7. rannsóknaáætlun ESB
Menntaáætlun ESB
Evrópa unga fólksins
Evróvísir – tækifæri fyrir ungt fólk
EURES-evrópsk vinnumiðlun
Menningaráætlunin
MEDIA kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun ESB
Enterprise Europe Network – CIP
Norðurslóðaáætlunin
eTwinning
PROGRESS – jafnréttis og vinnumál
Daphne III – gegn ofbeldi á konum og börnum
Almannavarnaáætlunin





English

