Hugmyndir
Markmið
Áætlunin styður rannsóknir í framlínu vísindanna í Evrópu með það að markmiði að koma þeim í leiðandi stöðu. Áætlunin byggist á stofnun Evrópska rannsóknaráðsins (ERC), sem samanstendur af Vísindaráði og sérstakri skrifstofu þess. Rannsóknasvið áætlunarinnar eru óháð stefnu og sviðum annarra hluta 7.rannsóknaáætlunarinnar og styður m.a. rannsóknir á sviðum verkfræði, félagsvísinda og hugvísinda.
Vísindaráðið ber ábyrgð á stjórnun Evrópska rannsóknaráðsins og í því sitja 22 framúrskarandi fulltrúar evrópsks vísindasamfélags, tilnefndir af framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins.
Áherslusvið
Lögð verður áhersla á tvær leiðir til styrkveitinga sem byggist á verkefnatillögum frá einstökum vísindamönnum óháð rannsóknasviðum. Þetta verður kjarninn í starfsemi ráðsins á meðan 7. rannsóknaáætlunin varir.
Forgangur verður í fyrstu gefinn svokölluðum „sjálfstæðum upphafsstyrkjum“ (e. ERC Starting Independent Research Grant), sem miðast við að styrkja framúrskarandi vísindamenn snemma á ferli þeirra eftir doktorsnám, mynda eigin rannsóknahópa, og skapa svigrúm til að fylgja eigin hugmyndum eftir. Vísindaráðið hyggst verja þriðjungi af árlegu fjármagni Rannsóknaráðsins (um það bil €300-350 milljónir árlega) til um 200 upphafsstyrkja.
Önnur tegund styrkja, rannsóknastyrkir til reyndari vísindamanna (e the Advanced Investigator Research Grant Scheme), verða veittir síðar.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 7.51 milljarður.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
Dr. Katrín Valgeirsdóttir, Rannís

English

