Mannauður
Mannauðsáætlun Evrópusambandsins (People) miðar að því að efla mannauðinn í evrópsku rannsókna- og þróunarstarfi og auka fjölda vísindafólks og annarra starfskrafta á þeim vettvangi. Áætlunin hvetur fólk á öllum aldri til að leggja fyrir sig rannsóknastörf í Evrópu og eflir um leið aðdráttarafl álfunnar fyrir vísindafólk hvaðanæva að úr heiminum.
Aðgerðir 7. rannsóknaáætlunarinnar byggjast á langri reynslu af svokölluðum Marie Curie verkefnum og ná til vísindafólks á öllum stigum starfsferilsins, frá fyrstu þjálfun til símenntunar og starfsþróunar.
Innan Mannauðsááætlunarinnar eru eftirfarandi styrkflokkar:
- Þjálfunarnet (Initial Training Networks (ITN))
- Styrkir til evrópsks vísindafólks til rannsóknardvalar í öðru Evrópulandi (IEF)
- Rannsóknastöðustyrkir í Evrópu (CIG)
- Styrkir til rannsóknardvalar utan Evrópu (IOF)
- Styrkir til rannsóknardvalar í Evrópu fyrir vísindafólks frá öðrum löndum (IIF)
- Samstarfsverkefni um vistaskipti starfsfólks rannsóknastofnana/-fyrirtækja (IRSES)
- Samstarfsverkefni rannsóknastofnana og atvinnulífs (IAPP)
- Samfjármögnun rannsóknarstyrkja (COFUND)
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veita:
Elísabet Andrésdóttir, Rannís
Ásta Erlingsdóttir, Rannsóknaþjónustu HÍ
Fulltrúar Íslands í áætluninni
Rannísdagatal
10.2.2012
Hugarflug 201215.3.2012
Tækjasjóður - umsóknarfrestur
English

