Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » MANNAUÐUR » CIG

CIG

Rannsóknastöðustyrkir í Evrópu
Career Integration Grants (CIG)

Vísindafólk getur sótt um styrk til verkefnavinnu innan evrópsks fyrirtækis eða stofnunar (þ.m.t. á Íslandi) að því gefnu að hafa ekki starfað í viðkomandi landi sl. þrjú ár. Styrkurinn getur verið til 2-4 ára og er hámarksstyrkur €25.000 á ári, þ.e. allt að €100.000 á 4 ára tímabili. Hann má nýta til launa umsækjandans sjálfs, aðstoðarfólks og til að greiða beinan verkefniskostnað. Umsækjandinn gerir ráðningarsamning við stofnunina eða fyrirtækið þar sem hann hyggst starfa. Verkefni geta verið af hvaða rannsóknasviði sem er.

Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsgráðu eða búa yfir a.m.k. fjögurra ára rannsóknarreynslu. Styrkurinn er sérstaklega ætlaður til að hjálpa vísindafólki að hasla sér völl í rannsóknum að loknu námi eða rannsóknaþjálfun.

CIG styrkurinn sameinar tvö eldri styrkform, ERG og IRG, en það síðarnefnda hentaði mjög vel Íslendingum sem vildu snúa heim eftir doktorsnám eða rannsóknadvöl utan Evrópu (aðallega í Bandaríkjunum). Til viðbótar þessu getur nú vísindafólk sem vill hasla sér völl utan Íslands eða snúa heim eftir rannsóknadvöl í öðru Evrópulandi sótt um styki til slíkra vistaskipta.

Umsóknarfrestir á árinu 2012 verða 6. mars og 18. september


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<