IAPP
Samstarfsverkefni rannsóknastofnana og atvinnulífs
Industry-Academia Partnerships and Pathways (IAPP)
Samstarfsverkefnum rannsóknastofnana og atvinnulífs er ætlað að auka hreyfanleika vísindafólks milli háskóla/rannsóknastofnana og fyrirtækja. Lágmarksfjöldi umsækjenda er eitt fyrirtæki í samvinnu við einn háskóla eða rannsóknastofnun frá öðru landi þó umsækendur geti einnig verið fleiri. Sótt er um á grundvelli sameiginlegs rannsóknarverkefnis sem felur m.a. í sér tímabundin mannaskipti milli þátttakenda. Hægt er að sækja um styrk vegna launakostnaðar, ferðakostnaðar, tímabundinna ráðninga sérfræðinga, ráðstefnuhalds o.fl. Lengd verkefna er 3-4 ár og geta þau verið af hvaða rannsóknasviði sem er.
Ekki er gerð krafa um að fyrirtæki í samstarfinu falli undir skilgreiningu um lítil og meðalstór fyrirtæki en ætlast er til að yfir helming tekna þeirra megi rekja til beinnar starfsmi á markaði. Þannig geta fyrirtæki í eigu opinberra aðila tekið þátt ef þau þéna meirihluta tekna sinna á markaði.
Næsti umsóknarfrestur verður 19. apríl 2012
Leiðbeiningar fyrir umsækjendur frá 2009 (frestur liðinn)
Kynningarfundur 6. maí 2009 á Grand hóteli Reykjavík




English

