IRSES
Samstarfsverkefni um starfsmannaskipti
International Staff Exchange Scheme (IRSES)
Rannsóknastofnanir og fyrirtæki geta sótt um styrk úr Mannauðsáætluninni til að skiptast tímabundið á starfsmönnum og gefa þeim kost á byggja tengsl sína á milli og kynnast starfsháttum utan heimalandsins. Lágmarksfjöldi umsækjenda eru tvær stofnanir/fyrirtæki frá tveimur aðildarlöndum áætlunarinnar en þar að auki er gert ráð fyrir að ein stofnun eða fyrirtæki frá landi sem ekki er fullur þátttakandi á áætluninni taki þátt í hverju verkefni. Hér má finna lista yfir möguleg þátttökuríki.
Veittur er styrkur til 2-4 ára vegna ferðakostnaðar og uppihalds sem tengist dvöl starfsmanna við stofnunun utan heimalandsins. Hámarksdvöl hvers einstaklings eru 12 mánuðir og gert er ráð fyrir að viðkomandi snúi heim aftur að dvöl sinni lokinni. Greiddar eru mánaðarlega €1.900 á hvern starfsmann sem tekur þátt í skiptunum. Ekki er gert ráð sérstöku framlagi til launa.
IRSES styrkirnir henta sérstaklega vel þeim stofnunum eða fyrirtækjum sem eiga í samstarfi við ríki sem ekki eiga beina aðild að 7. rá. Umsóknir geta verið af hvaða rannsóknasviði sem er.
Næsti umsóknarfrestur er 18. janúar 2012.




English

