ITN
Þjálfunarnet
Initial Training Networks (ITN)
Þjálfunarnet eru samstarfsverkefni nokkrurra háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja sem taka að sér þjálfun vísindafólks á fyrstu stigum starfsferilsins. Í flestum tilfellum er um að ræða samstarf um doktorsmenntun, en ekki er þó nauðsynlegt að nemendur ljúki tiltekinni prófgráðu eða starfsréttindum á verkefnistímanum. Einnig er þátttökustofnunum gert kleift að ráða til sín nýdoktora í takmörkuðum mæli.
þátttakendum í þjálfunanrnetum er úthlutaður styrkur sem gerir þeim kleift að auglýsa eftir nemendum og greiða laun þeirra, ferðakostað og önnur tengd útgjöld. Einnig má sækja um styrki til námskeiðshalds, útgáfu, ráðstefnuhalds o.fl. Gert er ráð fyrir að nemendur taki hluta af námi sínu við fleiri en eina stofnun í netinu og krafist er þátttöku fyrirtækja í verkefnum. Lágmarksfjöldi þátttakenda er jafnan þrír en í einstaka vel rökstuddum tilfellum þó færri ef verkefnið er unnið í nánum tengslum við stofnanir/fyrirtæki sem ekki eru beinir aðilar að verkefninu.
Þjálfunarnet geta verið af öllum sviðum vísinda og tækni en áhersla er lögð á þverfaglegar umsóknir sem ný rannsóknarsvið.
Veittur er styrkur til allt að fjögurra ára en einstaka nemendur geta þó aðeins verið ráðnir til þriggja ára að hámarki.
Næsti umsóknarfrestur verður 12 janúar 2012.
Upptökur af kynningum fyrir umsóknarfrest 2012
Kynningarfundur á Grand hóteli 28.09.2009




English

