Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » Námskeið » Námskeið 12. júní

Námskeið 12. júní

Námskeið - Sóknarfæri í Evrópusjóði fyrir Smá- og meðalstór íslensk fyrirtæki (SME)

RANNÍS stendur að námskeiði um sóknarfæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópusjóði, ásamt Samtökum Iðnaðarins og Impru.

Þriðjudaginn 12. júní kl. 9-16, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð.

Námskeið um styrkjamöguleika íslenskra fyrirtækja í evrópskum rannsókna- og þróunaráætlunum í 7. rannsóknaáætlun ESB (7. RÁ) og Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB (CIP). Innnan þessara áætlana er undiráætanir sérsniðnar að þörfum smærri fyrirtækja sem útdeila munu 467,5 milljörðum íslenskra króna í styrki á næstu árum.

Fyrirlesari er Dr. Sigurður G. Bogason, framkvæmdastjóri MarkMar ehf. (www.markmar.is) sem hefur mikla reynslu af styrkjaáætlunum Evrópusambandsins bæði sem vísindafulltrúi hjá Framkvæmdastjórn ESB og umsækjandi styrkumsókna.

Námskeiðsgjald er 20.000 krónur og innifelur námskeiðsgögn, kaffi og hádegismat. Skráning á netfangið rannis@rannis.is eða í síma 515 5800 í síðasta lagi föstudaginn 8.júní.


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<