Samvinna
Samvinnuáætlunin styður við rannsóknir sem unnar eru í fjölþjóðlegri samvinnu rannsóknarhópa með það að markmiði að tryggja forystu Evrópu á lykilsviðum vísinda og tækninýjunga.
Samvinnuáætlunin skiptist í 10 undiráætlanir. Hver áætlun er sjálfstæð eining en ber að viðhalda samheldni innan Samvinnuáætlunarinnar og skal taka mið af öðrum undiráætlunum ef um þverfagleg verkefni er að ræða.
Undiráætlanirnar 10 tákna þær áherslur á sviði þekkingar og tækni sem best geta stuðlað að aukinni getu Evrópu til að takast á við félagslegar og hagfræðilegar áskoranir, sem og áskoranir á sviði iðnaðar, umhverfis og heilbrigðisvísinda. Stuðst er við fjölda aðila til að meta mikilvægustu áherslur, þ.á.m. Evrópska tæknivettvanga (ETP). Mikilvægar áherslur teknar úr rannsóknastefnum Evrópsku tæknivettvanganna, hafa verið felldar inn í Samvinnuáætlunina.
Í öllum undiráætlunum er stuðningur til fjölþjóðlegs samstarfs veittur með:
- Rannsóknasamvinnu
- Tæknivettvöngum
- Samstilltum tækniaðgerðum (JTI)
- Samhæfingu í starfi evrópskra rannsóknasjóða
Rannsóknasamvinna: Evrópa í forystu
Rannsóknastyrkir 7.RÁ fara að mestu í rannsóknasamvinnu, með það fyrir augum að skapa framúrskarandi rannsóknaverkefni, efla samstarf vísindafólks og laða að rannsóknaaðila frá Evrópu og víðar.
Tæknivettvangar
Evrópskum tæknivettvöngum (ETPs) hefur verið komið á fót á þeim sviðum rannsókna og tækniþróunar sem hafa munu mikil áhrif á samkeppnishæfni, hagvöxt og velferð Evrópu til lengri og skemmri tíma Tæknivettvangarnir leiða saman hagsmunaaðila úr iðnaði til að skilgreina og framkvæma rannsóknastefnu (SRA). Evrópskir tæknivettvangar hafa tekið þátt í skilgreiningu áætlana innan Samvinnuáætlunarinnar, sérstaklega á sviðum iðnaðarrannsókna. Framkvæmd rannsóknastefnu verður studd af Samvinnuáætluninni á sviðum sem best þjóna hagsmunum Evrópu.
Samstilltar tækniaðgerðir
Í sérstökum tilfellum kallar umfang rannsóknamarkmiða eftir samstarfi opinberra aðila og einkaaðila með svokölluðum Samstilltum tækniaðgerðum (JTI). Þessar aðgerðir, sem að mestu eru afrakstur Evrópskra tæknivettvanga, lúta að takmörkuðum fjölda valinna rannsóknasviða innan viðkomandi geira. Þær eru fjármagnaðar með framlögum opinberra aðila og einkaaðila frá ríkjum Evrópu, styrkjum úr 7.RÁ og með lánum Evrópska fjárfestingabankans. Samstilltar tækniaðgerðar verða ákvarðaðar á grundvelli 171. greinar stofnsáttmála Evrópusambandsins.
Samhæfing í starfi evrópskra rannsóknasjóða
Þetta framtak byggist á tvenns konar samstarfi: annars vegar ERA-NETum, sem fjármögnuð eru af þátttökulöndunum, og hins vegar á grundvelli 169. greinar stofnsáttmála Evrópusambandsins, þar sem sambandið tekur þátt í fjármögnun sameiginlegra rannsóknasjóða ríkjanna. Þetta framtak getur náð til sviða utan hinna 10 undiráætlana Samvinnuáætlunarinnar svo lengi sem þau þjóna hagsmunum Evrópu. Framtakið gegnir einnig því hlutverki að bæta samvirkni og samstillingu milli 7.RÁ og annarra fljölþjóðlegra áætlana svo sem EUREKA og COST. ERA-NETin munu vinna að samhæfingu í starfi rannsóknasjóða landanna á tvennan hátt:
- Með því að leggja grunn að samstarfsvettvangi rannsóknasjóða til að auka samhæfingu með nýjum ERA-NETum og efla núverandi ERA-NET.
- Með því að ESB leggi til viðbótarfé í sameiginlega sjóði þátttökulandanna er nýta á í fjármögnun fjölþjóðlegra rannsóknaverkefna (‘ERA-NET PLUS’).

English

