Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » SAMVINNA » Geimtækni

Geimtækni

Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er að stuðla að uppbyggingu í geimtækni með áherslu á stoðkerfi eins og hnattrænt eftirlit vegna umhverfis- og öryggismála (GMES, Global Monitoring for Environment and Security). Rannsóknirnar munu vera til hagsbóta fyrir almenning og samkeppnisstöðu evrópsks geimtækniiðnaðar. Þetta stuðlar að þróun evrópskrar stefnu um geimmál og styrkir starfsemi aðildarlandanna og annarra lykilaðila, svo sem Evrópsku geimrannsóknastofnunarinnar (ESA, European Space Agency).

Til hvers?
Á síðustu fjörutíu árum hefur verið byggð upp mikil tækniþekking og hæfni, bæði innan aðildarríkjanna og innan ESA. Það krefst rannsókna og nýrrar tækni að viðhalda samkeppnishæfni í iðnaði, þ.m.t. meðal framleiðenda, þjónustuaðila og framkvæmdaraðila. Kerfi og búnaður sem byggjast á geimtækni leiða af sér mikilvægan ávinning fyrir borgarana vegna ýmissa tæknilegra hliðarafurða og eru ómissandi liður í tæknisamfélaginu.

Áherslusvið

  • Búnaður í geimnum til þjónustu við evrópskt samfélag - þróun gervihnattakerfis til vöktunar og viðvörunar vegna umhverfis- og öryggismála, landbúnaðar, skógræktar og veðurfræði, almannavarna og áhættustjórnunar (GMES)
  • Könnun geimsins – stuðningur við samstarf ESA og aðildarlanda, einnig samstilling verkefna sem miðast að þróun og smíði sjónauka í geimnum
  • Styrking grundvallarrannsókna vegna geimvísinda – rannsóknir vegna framtíðarþarfa vegna geimflutninga, líf- og heilbrigðisvísinda og eðlisfræði í geimnum

 

Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 1,4 milljarðar.

 


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<