Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » SAMVINNA » Heilbrigðisvísindi

Heilbrigðisvísindi

Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er að stuðla að bættri heilsu evrópskra ríkisborgara og efla samkeppnishæfni heilbrigðisgeirans og fyrirtækja tengdum honum. Einnig er áhersla lögð á að beina spjótum gegn alþjóðlegum heilsufarsvandamálum s.s. fjölónæmum bakteríustofnum, HIV/alnæmi, malaríu, berklum og sjúkdómsfaröldrum.

Til þess að

  • Stuðla að góðri heilsu
  • Koma í veg fyrir og meðhöndla helstu sjúkdóma
  • Efla heilbrigðisþjónustu
  • Auka samkeppnishæfni tækniiðnaðar er viðkemur heilbrigðis- og læknisfræði,
    með aðaláherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki
  • Þróa staðlaðar reglur og aðferðir fyrir sérhæfðar sjúkrameðferðir
  • Efla alþjóðlegt samstarf gegn víðtækum heilsufarsvandamálum
  • Stunda rannsóknir á sjaldgæfum sjúkdómum

   

Áherslusvið

  • Líftækni og önnur tækni er viðkemur heilbrigðisvísindum – aukin þekking sem
    nýtist í heilbrigðis– og læknisfræðum
  • Hagnýting rannsókna á heilbrigðissviði – stuðla að rannsóknum til bættrar lýðheilsu
  • Hagræðing heilbrigðisþjónustu til evrópskra ríkisborgara – sjá til þess að borgarar
    njóti góðs af læknisfræðilegum rannsóknaniðurstöðum

  

Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 6 milljarðar.

 


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<