Matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni
Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er að styrkja evrópskt lífhagkerfi grundvallað á þekkingu. Með evrópska lífhagkerfinu er átt við matvælaiðnað, fóðurframleiðslu, skógrækt, sjávarútveg, landbúnað, fiskeldi og lífefnaiðnað. Ætlunin er að stuðla að auknu samstarfi þeirra sem framleiða, hafa umsjón með og nýta lífrænar auðlindir eða stunda aðra starfsemi byggða á þeim. Er hér átt við greinar eins og matvælaframleiðslu, sjávarútveg, landbúnað, skógrækt, fiskeldi og aðrar skyldar greinar.
Til hvers?
Evrópska lífhagkerfið gegnir afgerandi hlutverki í alþjóðaviðskiptum. Aukin þekking er besta leiðin til að auka framlegð og samkeppnishæfni, ásamt því að auka lífsgæði og á sama tíma stuðla að verndun umhverfis og viðhaldi samfélagsgerðar okkar.
Evrópska lífhagkerfið þarf að auki að bregðast við nýjum þörfum svo sem:
- Aukinni eftirspurn eftir öruggari, hollari og betri matvælu
- Sjálfbærri nýtingu og framleiðslu endurnýtanlegra lífrænna auðlinda
- Farsóttum og sjúkdómum frá dýrum og fæðutengdum kvillum
- Ógnum við sjálfbæra nýtingu og öryggi innan landbúnaðar, sjávarútvegs og fiskeldis
- Aukinni eftirspurn eftir hágæða matvælum, framleiddum með tilliti til velferðar dýra,
í svæðisbundnu samhengi og með sérstöku tilliti til sérþarfa neytenda
Áætlað er að samanlögð velta evrópska lífhagkerfisins sé yfir €15.000 miljarðar.
Áherslusvið
-
Sjálfbær framleiðsla og nýting lífrænna auðlinda lands, skógar, vatns og hafsvæða
-
Frá haga til maga: Matur, heilsa og velferð
-
Lífvísindi og líftækni við sjálfbæra framleiðslu og ferla aðra en matvælaframleiðslu
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 1,9 miljarðar
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veita
Dr. Katrín Valgeirsdóttir, Rannís

English

