Orka
Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er að aðlaga orkukerfi nútímans að kröfum um sjálfbærni, samkeppnishæfni og öryggi. Orkunotkun verði síður háð innfluttum orkugjöfum, auka skal notkun fjölbreyttari orkugjafa, einkum endurnýjanlegra.
Til hvers?
Aukin eftirspurn eftir orku á heimsvísu og til að drífa hagþróun og efla samkeppnishæfni Evrópu, krefst þróunar á hagkvæmri tækni sem stuðlar að sjálfbærum orkubúskap í álfunni.
Áherslusvið
- Vetni og efnarafalar
Styrkja skal tæknilegar undirstöður evrópsks vetnis- og efnarafalaiðnaðar. Færanlegar og varanlegar lausnir samgöngukerfa. - Raforkuvinnsla með endurnýjanlegum orkugjöfum
Þróun tækni sem eykur m.a. hagkvæmni, áreiðanleika við nýtingu á staðbundnum aðföngum til orkuframleiðslu. - Framleiðsla eldsneytis með endurnýjanlegum orkugjöfum
Að þróa ný kerfi og auka hagkvæmni núverandi kerfa til framleiðlsu eldsneytis úr endurnýjanlegum orkugjöfum. - Endurnýjanlegir orkugjafar til upphitunar og kælingar
- Tækni til söfnunar og geymslu koltvísýrings vegna orkuvinnslu án losunar
- Rannsóknir, þróun og framsetning á búnaði og tækni sem dregur úr neikvæðum umhverfisáhrifum bruna jarðefnaeldsneytis og felst í koltvísýringssöfnun og -bindingu, einkum neðanjarðar
- Orkudreifikerfi
Rannsóknir, þróun og framsetning á lausnum sem auka afköst, áreiðanleika, öryggi og gæði evrópsks orkudreifinets, með hliðsjón af samþættum orkumarkaði. - Hagkvæmni og orkusparnaður
Rannsóknir, þróun og framsetning á nýjum lausnum og bætt hagkvæmni núverandi tækni til orkusparnaðar í byggingum, samgöngum og iðnaði, með hliðsjón af líftíma kerfanna. - Þekkingargrunnur undir mótun orkustefnu
Aðferðir, verkfæri og líkön til greiningar á samfélagslegum og hagrænum þáttum orkukerfa, sem gefa færi á mælanlegum árangursviðmiðum til lengri og skemmri tíma.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 2,3 milljarðar

English

