Örvísindi, örtækni, efnistækni og ný framleiðslutækni (NMP)
Markmið
Markmið áætlunarinnar er að auka samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og skapa þá þekkingu sem þörf er á til að umbreyta þessu sviði frá því að vera fyrst og fremst tengt hráefnum og tækjabúnaði yfir í að vera þekkingar-iðnaður. Rannsóknir á sviði NMP styrkja einnig samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar þar sem það er vítamínsprauta fyrir mörg svið iðnaðar. Einnig innleiðir NMP þau áhrif þekkingar sem nauðsynleg eru fyrir nýja þverfaglega tækni. Styrkveitingar munu gagnast nýjum hátæknifyrirtækjum og tæknifyrirtækjum í hefðbundnum iðnaði. Athyglinni verður sérstaklega beint að miðlun niðurstaðna rannsóknaverkerkefna til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Til hvers?
Umbreyting evrópsks iðnaðar í að verða þekkingariðnaður er nauðsynleg til að auka virðisauka í framleiðslu. Einnig er það nauðsynlegt til að skapa ný iðnaðarfyrirtæki, svara kröfum neytenda og væntingum samfélagsins, m.a. til vaxtar með tilliti til umhverfisins og heilbrigiðisvísinda.
Áherslusvið
- Örvísindi og örtækni – Rannsóknir og stýring á eiginleikum efnis á ör-kvarða. Þróun á örtækni sem leiðir til nýrra afurða og nýrrar þjónustu.
- Efni – með því að nota örtækni og líftækni til að búa til nýjar afurðir og nýja þjónustu
- Ný framleiðsla – Rækta jarðveg fyrir skapandi framleiðslu og búa til framleiðslueiningar, sem geta t.d. verið tækni, fyrirtæki, framleiðsluaðferðir og mannauður. Krafan er ávallt um öryggi og tillit til umhverfisins.
- Tækniyfirfærsla í iðnfyrirtækjum – Áhersla verður lögð á ný efni og tækni sem svara kröfum og væntingum.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 3.5 milljarðar
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
Dr. Katrín Valgeirsdóttir
Rannís

English

