Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » SAMVINNA » Öryggismál

Öryggismál

Markmið
Markmið áætlunarinnar er að styrkja verkefni sem hafa það að markmiði að tryggja öryggi borgaranna gagnvart hryðjuverkum, skipulagðri glæpastarfsemi og náttúruhamförum. Stuðlað verður að samhæfðri notkun á tækni til almannavarna, hvatt til samstarfs birgja og notenda í öryggismálum, stuðlað að aukinni samkeppnishæfni evrópsks öryggisiðnaðar..

Til hvers?
Rannsóknir í öryggismálum eru einn af hornsteinum frelsis, öryggis og réttarfars í Evrópu. Þær munu einnig styðja við þróun tækni og getu í takt við stefnu Evrópu í samgöngumálum, almannavörnum, orkumálum og heilbrigðismálum.

Áherslusvið

  • Aukið öryggi borgaranna
    Tæknilausnir vegna almannavarna, lífeðilisfræðileg öryggismál, varnir gegn glæpum og hryðjuverkum
  • Öryggi innviða - samgöngukerfi, orkukerfi, upplýsingakerfi, þ.m.t. fjármála og stjórnkerfi
  • Landamæraeftirlit og öryggi
    Tækni og önnur aðföng til þess að bæta afköst, búnað og ferli, með það fyrir augum að auka öryggi landamæra á sjó og landi, eftirlit og vöktun meðtalin
  • Endurreisn öryggis í kjölfar hættuástands
    Tæknilausnir, samskipti, neyðarstjórnun og skipulag aðgerða í almannavörnum, björgunarmálum og öðru hjálparstarfi
  • Samhæfing og samskiptahæfni öryggiskerfa
    Gagnasöfnun, öryggi, áreiðanleiki og rekjanleiki gagna
  • Öryggi og samfélagsmál
    Félags- og hagfræðilegar, pólitískar og menningarlegar hliðar öryggismála, siðfræði og ríkjandi gildi, viðtökur öryggislausna hjá almenningi, félagslegt umhverfi og upplifun öryggis
  • Stjórnun og uppbygging öryggisrannsókna
    Samstilling evrópskra og alþjóðlegra öryggis- og varnarmálarannsókna

 

Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 1,4 milljarðar


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<