Samgöngur
Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er að stuðla að öruggari, umhverfisvænni og skilvirkari samgöngukerfum um Evrópu, til hagsbóta fyrir borgarana og umhverfið, jafnframt því að auka samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs.
Til hvers?
Samgöngukerfi Evrópu leikur lykilhlutverk vegna fólks- og vöruflutninga og er ákveðin undirstaða að hagsæld. Leita verður leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum aukinna samgangna á umhverfi, orkunotkun, öryggi og heilsu.
Áherslusvið
- Flugmál
Minnkun útblásturs, endurbættar vélar og nýir orkugjafar
Flugumferðarstjórnun, öryggismál flugumferðar
Hagkvæmni flugumferðar með tilliti til umhverfismála - Sjálfbærar samgöngur á jörðu niðri, lestir, vegaumferð og siglingar
Þróun hreinna og hagkvæmra aflvéla og drifkerfa
Minnkun áhrifa samgangna á hnattrænar loftslagsbreytingar
Fjölbreytni ferðamáta í samgöngum, jafnt staðbundnum og til allra landshluta
Umhverfisvæn og örugg farartæki
Uppbygging og viðhald samgöngumannvirkja, samþætting kerfa - Stuðningur við Evrópska gervihnattaleiðsögukerfið
Galileo og EGNOS
Siglingafræði
Nýting gervihnattaleiðsögukerfa
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar er € 4,1 milljarður.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
landstengiliður
Dr. Skúli Þórðarson, Vegsýn ehf.
sími: 846 7253
Rannísdagatal
14.6.2012
Mental Health Europe Conference 2012 
English

