Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » SAMVINNA » Umhverfi

Umhverfi

Markmið
Markmið rannsókna í áætluninni er sjálfbær nýting á náttúrulegum og manngerðum auðlindum. Áhersla er lögð á að auka þekkingu á samspili veðurfars, lífheims, vistkerfis og mannlegra framkvæmda með þróun á nýrri vistvænni tækni.

Til hvers?
Náttúruauðlindir eru takmarkaðar og umhverfisvandamálin liggja utan landamæra þjóða. Því þurfa Evrópulönd að skipuleggja nýja, sameiginlega og sjálfbæra umhverfisáætlun.

Áætlað er að styrkja rannsóknir eftirfarandi sviða:

  • Spár og breytingar á veður-, vist-, jarðar- og sjávarkerfum.
  • Aðferðir og tækni til stjórnunar, forvarna og til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, m.a. á heilsu.
  • Sjálfbær nýting náttúrulegra og manngerðra auðlinda.

Einnig er lögð áhersla á að auka samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar á sviði umhverfistækni.

Áherslusvið

  • Umhverfisbreytingar, mengun og hættumat
    Neikvæð áhrif á umhverfi og loftslag
    Umhverfi og heilsa
    Náttúruhamfarir
  • Sjálfbær nýting auðlinda
    Verndun og sjálfbær nýting á náttúrulegum og manngerðum auðlindum og verndun náttúrulegs fjölbreytileika
    Nýting á sjávarafurðum og umhverfi sjávar
  • Umhverfistækni
    Umhverfistækni til að rannsaka náttúrulegt og manngert umhverfi og jafnframt að stuðla að vörnum, forvörnum, endurbótum, aðlögun og þróun þess
    Verndun og stuðningur við menningararfleifð, hættumat á tapi menningararfleifðar.
    Aðferðafræði, gæðamat og prófun á tækni
  • Umhverfisvöktun og aðferðir til að meta breytingar í umhverfi
    Vöktunar- og stjórnunarkerfi fyrir umhverfið og sjálfbæra þróun á landi og legi
    Spár og aðferðir til að meta sjálfbæra þróun

 

Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 1.8 milljarðar.


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<