Upplýsinga- og samskiptatækni
Markmið
Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn Evrópu og tryggt að hún verði í forystu á þessu sviði. Áfram verður hvatt til að auka nýsköpun vöru, þjónustu og ferla og hvatt til frumleika með notkun á upplýsinga- og samskiptatækni. Einnig verður hvatt til þróunar nýrra kerfa til gagns fyrir borgara Evrópu sem og fyrirtækja og stjórnvalda. Starfið mun einnig minnka stafrænan aðskilnað og þjóðfélagslega útilokun.
Til hvers?
Upplýsinga- og samskiptatækni er mikilvægt svið innan rannsókna, þróunar og nýsköpunar til að skapa ný og krefjandi störf og auka lífsgæði íbúa Evrópu.Tæknin er einnig mikilvæg til að:
- Mæta ógnum og tækifærum alþjóðavæðingarinnar með því að styrkja nýsköpun, frumleika og samkeppnishæfni
- Þróa og framleiða hátæknilausnir á öllum sviðum vísinda og tækni
- Gera opinbera stjórnsýslu skilvirkari og nútímavæða alla samfélagsþætti - allt frá menntun til orkuframleiðsu
- Takast á við félagsleg vandamál, auka lífsgæði og takast á við vandamál þjóðfélags sem er að eldast
Áherslusvið
- Áreiðanlegir innviðir net- og þjónustukerfa sem eru umlykjandi - ný netkerfi og þjónustuinnviðir sem skapa möguleika á nýjum arðvænum nettengdum notendakerfum með lægri rekstrarkostnaði
- Þekkingarkerfi, gagnvirkni og róbótar - aðlaga kerfisverkfræðilegar aðferðir að opnu og síbreytilegu umhverfi raunveruleikans
- Íhlutir, kerfi og verkfræði - bæta samkeppnisstöðu evrópsks framleiðsluiðnaðar á sviði rafeindaíhluta og - kerfa
- Stafræn söfn og efni - auka samvirkni með því að tengja saman efni, þekkingu og fræðslu - að auðvelda aðgengi að efni og þekkingu auk þess að bæta gagnvirkni og nytsemi fyrir menn og vélar
- Sjálfbær og einstaklingsbundin heilsugæsla - þróa nýja kynslóð forvarnar-læknisfræði (predictive medicine) með því að nýta erfðatækni, líkanagerð, hermun og líflæknisfræðilega myndgreiningu og þekkingu á sjúkdómum á öllum sviðum allt frá sameindarstigi til líffæra- og kerfisstigs
- Upplýsinga- og samskiptakerfi fyrir flutningatækni, sjálfbærni umhverfismála og orkunýtni - þróa ný örugg og virk kerfi fyrir flutninga á fólki og vörum um leiðog leitast er við að auka getu Evrópu á sviði sjáfbærrar þróunar
- Að lifa óháður og í tengslum við samfélagið með aðstoð upplýsinga- og samskiptakerfa.
- Auka möguleika fólks sem á það á hættu að verða afskipt og gera öllum kleift að taka virkan þátt í upplýsinga- og þekkingarsamfélaginu
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 9,1 milljarður.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Björnsson, Rannís
Sigurður Guðmundsson,
Rannsóknaþjónustu HÍ
Kynning 3. nóvember 2011 með Morten Möller
Upplýsingatækniáætlunin á CORDIS

English

