Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » Sóknarstyrkir

Sóknarstyrkir

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur ákveðið að leggja til árlega allt að 10 m.kr. til þess að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og þróunarsamstarfs með íslenskri þátttöku. Enginn sérstakur umsóknarfrestur er tilgreindur. Forgangur er veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í 7. rannsóknaáætlun ESB en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.  

 

Hægt er að sækja um ferðastyrk til undirbúnings umsóknar, styrk vegna umsóknarskrifa og ráðgjafaþjónustu eða styrk vegna íslenskrar verkefnastjórnar.

 

Reglur um úthlutun sóknarstyrkja eru í endurskoðun og verða nýjar reglur og upplýsingar um umsóknarfrest birtar hér í janúar 2012.

 

Alþjóðasvið Rannís veitir nánari upplýsingar.

 


 

Ferðastyrkir til undirbúnings umsóknar í alþjóðlega rannsóknasjóði

Íslenskir rannsóknaaðilar sem undirbúa umsóknir í erlenda rannsóknasjóði geta sótt um ferðastyrki í Rannsóknasjóð til að hitta væntanlega samstarfsaðila erlendis. Forgangur er veittur umsóknum um ferðastyrki vegna undirbúnings umsókna í allar undiráætlanir 7. rannsóknaáætlunar ESB. Hámarksstyrkur úr Rannsóknasjóði er 200.000 kr. vegna útlagðs ferðakostnaðar (fargjald og dagpeningar) samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytisins hverju sinni. Styrkurinn er greiddur þegar eftirfarandi gögn liggja fyrir:

 

  • Staðfesting á móttöku umsóknar frá viðkomandi rannsóknasjóði.
  • Afrit af umsókn til viðkomandi sjóðs (þar sem nafn umsækjenda kemur fram).
  • Staðfesting á að umsókn hafi uppfyllt formskröfur.
  • Staðfesting á útlögðum ferðakostnaði.

Umsóknareyðublöð
Leiðbeiningar

 

Styrkir vegna umsóknaskrifa/ráðgjafaþjónustu

Íslenskir rannsóknaaðilar sem undirbúa umsókn í erlenda sjóði geta sótt um styrki vegna vinnu sérfræðings/ráðgjafa. Forgangur er veittur umsóknum um styrki vegna undirbúnings umsókna í alla undiráætlanir 7. rannsóknaáætlun ESB. Hámarksstyrkur úr Rannsóknasjóði er 250.000 kr. Styrkurinn er greiddur þegar eftirfarandi gögn liggja fyrir:

 

  • Staðfesting á móttöku umsóknar frá viðkomandi sjóði.
  • Afrit af umsókn til viðkomandi sjóðs (þar sem nafn umsækjanda kemur fram).
  • Staðfesting á að umsókn hafi uppfyllt formskröfur. ~

Umsóknareyðublöð
Leiðbeiningar

 

Styrkir vegna umsóknarskrifa fyrir íslenska verkefnisstjóra

Íslenskir rannsóknaaðilar geta sótt um styrki til vinnu sérfræðings/ráðgjafa vegna undirbúnings samstarfsumsóknar í 7. rannsóknaáætlun ESB þar sem íslenski aðilinn er verkefnisstjóri.* Hámarksstyrkur úr Rannsóknasjóði er 500.000 kr. Upphæð styrkja tekur mið, annars vegar af umfangi íslensku þátttökunnar í umsókninni (mælt í mannmánuðum) og hins vegar af þeirri einkunn sem umsóknin fær hjá ESB (sjá leiðbeiningar). Styrkurinn er greiddur þegar fyrir liggur:

 

  • Staðfesting á móttöku umsóknar frá 7. rannsóknaáætlun ESB.
  • Afrit af umsókn til 7. rannsóknaáætlunar ESB (þar sem nafn umsækjanda kemur fram).
  • Afrit af matsskýrslu 7. rannsóknaáætlunar ESB

*Ekki er hægt að sækja um styrk vegna “íslenskrar verkefnastjórnar” fyrir einstaklingsumsóknir undir Mannauðsáætlun 7.RÁ (Marie Curie), þ.e. styrkir er falla undir símenntun og starfsþróun og alþjóðlegt samstarf). 

 

Umsóknareyðublöð

 

Leiðbeiningar

 


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<