Um 7. rannsóknaráætlun ESB
7. rannsóknaráætlun Evrópusambandsins sameinar allan stuðning ESB við rannsóknir undir einu þaki og gegnir, ásamt hinni nýju Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun (CIP), lykilhlutverki í að uppfylla vaxtar-, samkeppnis- og atvinnumarkmið sambandsins. Hún er einnig lykilþáttur í uppbyggingu Evrópska rannsóknarsvæðisins (ERA).
7.RÁ er stytting á 7. rannsóknaráætlun ESB um rannsóknir og tækniþróun. Hér er um að ræða helsta tól ESB til fjármögnunar rannsókna í Evrópu og verður áætlunin í gildi frá 2007 til 2013. Ráðstöfunarfé til næstu sjö ára verður € 50,5 milljarðar og ráðstöfunarfé kjarnorkuáætlunarinnar Eurotom, sem Ísland á ekki aðild að, € 2,7 milljarðar. Allt í allt felur þetta í sér 41% aukningu, samanborið við 6.RÁ sé miðað við verðlag árið 2004.
7.RÁ er einnig ætlað að bregðast við samkeppnis- og atvinnuþörfum Evrópu. 7.RÁ styður rannsóknir á sérstökum áherslusviðum með það að markmiði að gera Evrópu leiðandi á þeim sviðum.
Uppbygging 7. RÁ
Í 7.RÁ eru 4 megináætlanir: SAMVINNA, HUGMYNDIR, MANNAUÐUR og UNDIRSTÖÐUR auk séráætlunar á sviði kjarnorkurannsókna.
- Heilbrigðisvísindi
- Matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni
- Upplýsinga-og samskiptatækni
- Örvísindi, örtækni, efnistækni og ný framleiðslutækni
- Orka
- Umhverfi
- Samgöngur
- Félagsvísindi, hagvísindi og hugvísindi (FHH)
- Geimtækni
- Öryggismál
HUGMYNDIR
Styrkir Evrópska rannsóknaráðsins til grunnrannsókna.
- Þjálfunarnet fyrir ungt vísindafólk
- Símenntun og starfsþróun vísindafólks
- Samstarf iðnaðar og menntastofnana
- Alþjóðlegt samstarf
- Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur
- Innviðir rannsókna
- Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja
- Þekkingarsvæði
- Færni vaxandi svæða til rannsókna og þróunar
- Vísindi í samfélaginu
- Samhæfing rannsókna
- Alþjóðlegt samstarf
SAMEIGINLEGA RANNSÓKNAMIÐSTÖÐIN - JRC
JRC samanstendur af nokkrum rannsóknamiðstöðvum sem fjármagnaðar eru af 7. RÁ og ætlað að styðja við stefnumótun, þróun og framkvæmd stefnumála Evrópusambandins.
Ráðstöfunarfé (í milljónum € )
SAMVINNA: € 32.365
HUGMYNDIR: € 7.460
MANNAUÐUR: € 4.728
UNDIRSTÖÐUR: € 4.217
JRC: € 1.751




English

