Alþjóðlegt samstarf
Markmið
Til að auka eigin samkeppnishæfni og alþjóðlegt hlutverk er Evrópusambandinu nauðsynlegt að byggja upp öfluga og samræmda rannsókna- og vísindastefnu gagnvart umheiminum, sem byggist á þremur markmiðum:
- Efla samkeppnishæfni með samstarfi við ríki utan Evrópska rannsóknasvæðisins á tilteknum vísindasviðum sem og með auknu samstarfi við besta vísindafólkið í umræddum ríkjum, m.a. með því að veita því tækifæri til að starfa innan Evrópu.
- Efla þekkingaröflun og vísindaleg gæði með því að aðstoða evrópska háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki til að efla sambönd sín við samstarfsaðila utan Evrópska rannsóknasvæðisins og bæta þannig aðgang að rannsóknarumhverfi utan Evrópu.
- Taka á tilteknum fjölþjóðlegum vandamálum eða vandamálum sem einstök ríki utan Evrópska rannsóknasvæðisins glíma við, með hag beggja í huga.
Af hverju?
Alþjóðleg samkeppnishæfni þróaðra ríkja er í auknum mæli tengd getu þeirra til að leiða fram, laga sig að og taka í notkun nýja tækni. Rannsóknir og tækniþróun eru talin til grunnþátta sjálfbærrar þróunar, hagsældar og hagvaxtar. Tækni og vísindi hafa einnig reynst mikilvæg þættir í styrkingu og útvíkkun annarra stefnumála sem áhrif hafa á samskipti við önnur ríki, t.a.m. viðskipti, þróunarmál, umhverfismál, orku, rafræn samskipti o.fl.
Þátttökuríkjum áætlunarinnar utan Evrópska rannsóknasvæðisins hefur verið skipt í eftirfarandi þrjá hópa:
- Ríki sem sótt hafa um inngöngu í Evrópusambandið;
- Nágrannaríki Evrópusambandsins við Miðjarðarhafið, í Austur- og Mið-Evrópu, Mið-Asíu og ríki á Vestur-Balkanskaganum, sem ekki hafa sótt um inngöngu í Evrópusambandið
- Þróunarríki, þar sem áhersla er lögð á ákveðnar þarfir þeirra;
- Rísandi hagkerfi (Emerging economies)
Áherslusvið
Veittur verður sérstakur stuðningur til alþjóðlegs samstarfs innan einstakra undiráætlana 7. rannsóknaáætlunarinnar í þeim hluta sem ber nafnið SAMVINNA. Alþjóðlegar aðgerðir á sviði mannauðsmála verða styrktar innan MANNAUÐSÁÆTLUNARINNAR. Aðgerðir sem ekki lúta að ákveðnum rannsóknasviðum verða framkvæmdar á grunni þess hluta 7. rannsóknaáætlunarinnar sem ber nafnið UNDIRSTÖÐUR. Þar mun einnig verða unnið að samræmingu í starfsemi rannsóknasjóða einstakra ríkja eða alþjóðlegra sjóða, sem styðja alþjóðlegt vísindasamsamstarf sem og ýmsar aðgerðir til eflingar alþjóðlegs samstarfs í ólíkum undiráætlunum 7.RÁ.
Aðgerðir áætlunarinnar um alþjóðlegt samstarf eru eftirfarandi:
Tvíhliða samstarf við hópa ríkja um samræmingu vísinda- og tæknisamstarfs: Hér er um að ræða forgangsröðun og skilgreiningu stefnumiða í vísinda- og tæknisamstarfi þar sem stefnumótandi aðilar, vísindasamfélagið, borgaralegar stofnanir og einkaaðilar í Evrópu annars vegar og viðkomandi samstarfsríkjum hins vegar koma sér saman um stefnumið og sérstakar aðgerðir til að auka þátttöku ríkja utan Evrópu í 7. RÁ. Verður það m.a. gert með stuðningi við upplýsingamiðlun í umræddum ríkjum:
- Vestur Balkanskaganum
- MiðjarðarhafsríkjumAustur-Evrópu og Kákasus
- Mið- og Suður-Ameríku
- Afríku, S-Afríku, Kyrrahafsríkjum og ríkjum við Karabíska hafið
- Asíu
Tvíhliða samstarf um þróun og eflingu vísinda- og tæknisamstarfs:
- Bætt upplýsingagjöf um áætlanir og styrki til eflingar samstarfs milli ríkja Evrópska rannsóknasvæðisins og annarra ríkja.
- Bætt skilgreining og aukinn skilningur á þeim hag sem felst í vísinda- og tæknisamstarfi milli ríkja Evrópska rannsóknasvæðisins og annarra ríkja.
- Miðlun aðferða og þekkingar, t.a.m. með sameiginlegum ráðstefnum, í því augarmiði að kanna möguleika á samstarfi á tilteknum rannsóknasviðum.
Stuðningur við samræmingu stefnumiða og aðgerða í einstökum ríkjum Evrópska rannsóknasvæðisins og annarra ríkja um alþjóðlegt vísinda- og tæknisamstarf (ERA-NET). Markmið ERA-NET verkefna er að efla samstarf og samræmingu milli áætlana í einstökum ríkjum eða svæðum og opna þannig rannsóknasjóði fyrir þátttöku erlendra aðila og þróun sameiginlegra aðgerða.
- ERA-NET "alþjóðlegt samstarf"
- ERA-NET PLUS "alþjóðlegt samstarf"
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar er € 180 milljónir.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
Elísabet M. Andrésdóttir, Rannís
Fulltrúar Íslands í áætluninni
Stjórnarnefndarfulltrúi:
Ásgerður Kjartansdóttir, vísindafulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel
Landstengiliður:
Elísabet M. Andrésdóttir, Rannís

English

