Færni vaxandi svæða til rannsókna og þróunar
Markmið
Hvetja til nýtingar á rannsóknamöguleikum Evrópusambandsins með því að opna fyrir og þróa möguleika á vaxandi svæðum og á jaðarsvæðum. Aðstoð við að styrkja möguleika rannsóknaaðila til að taka þátt í rannsóknaverkefnum á vettvangi Evrópusambandsins.
Hvers vegna?
Til að styðja við nýtingu og auka afköst hins stækkandi Evrópska rannsóknasvæðis verður leitast við að leiða fram þá hæfni sem býr í rannsóknahópum á ört vaxandi svæðum og á jaðarsvæðum.
Áherslusvið:
- Starfsmannaskipti rannsóknafólks á vaxandi svæðum.
- Aðföng og þróun á rannsóknatækjum og búnaði fyrir valin rannsóknasetur.
- Skipulagning vinnufunda og ráðstefna til að auka þekkingaryfirfærslu.
- Stuðningur við mat á rannsóknasetrum á vaxandi svæðum með úttekt óháðra alþjóðlegra sérfræðinga á gæðum rannsókna og innviðum þeirra.
Áætlunin er opin fyrir umsóknum af öllum rannsóknasviðum 7. rannsóknaáætlunarinnar.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar er € 340 milljónir.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
Þorvaldur Finnbjörnsson, Rannís
Rannísdagatal
14.6.2012
Mental Health Europe Conference 2012 
English

