Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » UNDIRSTÖÐUR » Innviðir rannsókna

Innviðir rannsókna

Markmið
Markmið áætlunarinnar er að hámarka notkun og þróun bestu rannsóknainnviða í Evrópu og að setja á stofn nýja innviði á öllum sviðum vísinda og tækni. Evrópska rannsóknasvæðið þarfnast slíkra innviða til að halda forystu sinni við framþróun rannsókna og aðstoða atvinnulífið til að styrkja þekkingargrunn sinn.

Til hvers?
Uppbygging þekkingar og nýsköpunar ræðst af gæðum og aðgengi rannsóknainnviða, þar á meðal stjörnuathugunarstöðvum, gagnabönkum, geislagjöfum (radiation sources) og samskiptanetum. Vettvangur evrópskrar stefnumótunar um rannsóknainnviði (The European Strategy Forum on Research Infrastructures, ESFRI) hefur gefið út vegvísi fyrir næstu 10 til 20 ár sem nefnist European Roadmap on Research Infrastructures (2006).

Um leið og einstök Evrópuríki ráða mestu um uppbyggingu og fjármögnun rannsóknainnviða, hefur Evrópusambandið það hlutverk að aðstoða við víðtækari og skilvirkari aðgang að þeim og notkun þeirra. Aðgerðir sambandsins ættu einnig að stuðla að samræmdri þróun og netsamstarfi innviða og hlúa að tilurð nýrra sem hafa sameiginleg evrópsk markmið.

Áherslusvið

  • Stuðningur við rannsóknainnviði sem þegar eru til staðar:
    Samþætt verkefni – veitir víðtækari og skilvirkari aðgang að og notkun á innviðum sem þegar eru til staðar í þátttökulöndum áætlunarinnar og á alþjóðavísu þegar það á við (þ.m.t. aðgang erlendra aðila, sameiginlegar rannsóknir og netsamstarf)
    Rafrænir innviðir byggðir á upplýsingatækni – styðja fjöldann allan af tengdum viðfangsefnum sem ætlað er að hlúa að tilurð nýrra rannsóknaaðstæðna þar sem „sýndarsamfélög’“ deila með sér og nýta sameinaðan styrk evrópskrar vísinda- og verkfræðiaðstöðu
  • Stuðningur við nýja rannsóknainnviði:
    Hönnunarverkefni – hugmyndir um nýja rannsóknainnviði sem fela í sér skýra Evrópuvídd og hagsmuni Uppbygging nýrra rannsóknainnviða – veita stuðning við undirbúning uppbyggingar
  • Annar stuðningur:
    Stefnumótun – stuðningur við uppbyggingu Evrópska rannsóknasvæðisins, þ.m.t. alþjóðlegt samstarf, samræmingu stefnu og áætlana um rannsóknainnviði innan tiltekinna landa eða svæða
    Framkvæmd áætlana og stuðningur við nýjar þarfir – styðja við skilvirka framkvæmd áætlunarinnar með því að hlúa að samstarfi milli landstengla og styðja aðgerðir sem til þess eru fallnar að koma auga á nýjar þarfir

 

Rástöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 1.8 milljarðar.


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<