Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Markmið
Markmið áætlunarinnar er að efla nýsköpun lítilla og meðalstórra fyrirtækja og auka framlag þeirra til vöru- og markaðsþróunar byggðri á tækni. Veittur er fjárhagslegur stuðningur til að fyrirtæki geti leitað sér aðstoðar við lausn rannsóknaverkefna, eflt eigin rannsóknir, bætt nýtingu rannsóknaniðurstaðna og bætt eigin tækniþekkingu. Umsóknir mega vera af öllum sviðum vísinda og tækni.
Áherslusvið
Lang viðamesti þáttur áætlunarinnar felst í stuðningi við kaup (outsourcing) á rannsóknavinnu þar sem fyrirtæki eða samtök fyrirtækja fela háskólum, rannsóknastofnunum eða sérhæfðum rannsóknafyrirtækjum að framkvæma tilteknar rannsóknir. Um tvenns konar verkefnistegundir er að ræða:
- Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja – Verkefnin eru sniðin að þörfum fyrirtækja með takmarkaða tækniþekkingu sem þurfa að leita aðstoðar við lausn tiltekinna rannsóknaverkefna. Hátæknifyrirtæki geta þó einnig tekið þátt í verkefnum ef þau hafa þörf fyrir rannsóknir sem liggja utan sérsviða þeirra. Verkefnunum er ætlað að leiða fram nýja þekkingu, bætta vöru, aðferðir eða þjónustu til hagsbóta fyrir fyrirtækin. Næsti umsóknarfrestur verður 8. desember 2010.
Hér má nálgast leiðbeiningar fyrir umsækjendur
- Rannsóknir í þágu samtaka lítilla og meðalstórra fyrirtækja - (collective research) – ætlaðar samtökum sem greina og takast á við tæknileg vandamál fyrir hönd aðildarfyrirtækja sinna, miðla þekkingu og aðstoða við hagnýtingu hennar. Verkefnin geta m.a. snúið að frumstigum rannsókna, tæknilegum vandamálum er tengjast þróun eða innleiðingu löggjafar og tæknilegum vandamálum sem snerta heilar iðngreinar. Næsti umsóknarfrestur verður 8. desember 2010.
Hér má nálgast leiðbeiningar fyrir umsækjendur
Þessu til viðbótar hefur áætlunin jafnframt veitt töluverðu fé til Eurostars-áætlunarinnar sem styrkir verkefni með þátttöku lítilla og meðalstórra rannsóknarfyrirtækja. Eurostars-áætlunin sem byggir á Eureka-samstarfinu auglýsir reglulega eftir umsóknum og geta íslenskir aðilar sótt þar um til jafns við aðra.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar er €1,336 milljarðar
Tengdar aðgerðir
SME TechWeb er upplýsingasíða Evrópusambandsins um rannsóknir lítilla og meðalstórra fyrirtækja
TransCoSME landstenglanetið: Hér má m.a. finna samstarfsleitir frá fyrirtækjum og stofnunum og dæmi um umsóknir með ábendingum fyrir umsækjendur.
Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins (CIP) veitir stuðning til eflingar þátttöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja í 7. rannsóknaáætluninni. Stefnt verður að því að auka þátttöku slíkra fyrirtækja á öllum forgangssviðum áætlunarinnar.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir:
Elísabet Andrésdóttir, Rannís
Upplýsingabæklingur
Research for SMEs
Upplýsingabæklingur
Research for SME Associations
Kynningarfundur á Íslandi, 11.10.2010
- Glærur
Reiknivél vegna fjárhagsáætlunar verkefna

English

