Samhæfing rannsókna
Markmið
Áætluninni er ætlað að auka skilvirkni og samræmingu á rannsóknastefnu þátttökuríkja og Evrópusambandsins sjálfs og tengsl hennar við önnur stefnumið. Jafnframt að auka áhrif rannsókna í opinbera geiranum á atvinnulífið og að efla stuðning hins opinbera við fjárfestingar einkaaðila.
Hvers vegna?
Evrópusambandið ætlar að bæta skilvirkni og samræmingu rannsóknastefnu þátttökuríkja við sína eigin og auka áhrif opinberra rannsókna og tengsl þeirra við atvinnulífið.
Áherslusvið
- Vöktun og greining á rannsóknatengdum stefnumiðum og áætlunum til að fá fram eigindlegar og megindlegar upplýsingar sem styðja við hönnun, útfærslu, mat og fjölþjóðlega samræmingu á stefnumiðum og áætlunum sem tengjast rannsóknum í opinbera geiranum
- Þróun á ERAWATCH
- Vöktun á fjárfestingum einkaaðila í rannsókum
- Þróun og greining á vísbendingum um rannsóknir og áhrif þeirra á hagkerfið
- Styrkja samræmingu á rannsóknastefnumiðum. Auka þekkingu á stefnumótun og mat á góðum aðferðum til að styðja við rannsóknir með tilliti til möguleika á yfirfærslu þeirra og aðferða við útfærslu. Í þessari áætlun eiga Evrópskir samstarfsvettvangar að fá möguleika til að skoða og sannreyna góðar aðferðir, koma á tengslaneti viðkomandi aðila og hvetja til jafningjamats.
- Styðja við útfærslu á „aðferðum við opna samræmingu“ (Open Method of Coordination eða OMC)
- Stuðningur við samræmingu á frumkvæði landa og svæða við „aðferð við opna samræmingu“ (OMC-NET)
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar er € 70 milljónir.
Upplýsingar
Rannísdagatal
14.6.2012
Mental Health Europe Conference 2012 
English

