Þekkingarsvæði
Markmið
Markmið áætlunarinnar er að auka möguleika evrópskra svæða til að stunda og hagnýta rannsóknir. Einkum er lögð áhersla á að hvetja til og styðja við uppbyggingu á svæðisbundnum, rannsóknaþungum klösum með því að styrkja tengsl háskóla, rannsóknamiðstöðva, fyrirtækja og sveitarfélaga.
Til hvers?
Áætlunin mun gera svæðum kleift að styrkja hlut rannsókna og þróunar í svæðisbundinni hagþróun og styðja við aukið rannsóknastarf og þróun með því að efla rannsóknaþunga klasa. Aðgerðir áætlunarinnar munu þannig skila sér í auknum möguleikum svæða til að fjárfesta í og efla rannsóknir og renna þar með frekari stoðum undir staðbundna hagþróun. Þær munu ennfremur hvetja svæðisbundna þátttakendur til aðildar að evrópskum rannsóknaverkefnum. Aðgerðirnar verða í samræmi við svæðisbundnar stjórnvaldsaðgerðir ESB og Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun sambandsins (CIP).
Áherslusvið
Áætluninni verður framfylgt með því að styrkja verkefni sem miðast við eftirtalin áherslusvið:
Greining, þróun og framkvæmd rannsóknaáætlana fyrir svæðisbundna eða fjölþjóðlega klasa.
- Áherslusvið sem skilgreind hafa verið mikilvæg við greiningu á svæðisbundnum áætlunum um auknar rannsóknir og þróun; áherslusvið sem mikilvæg eru fyrir stuðning við þróun atvinnulífsins.
- Stuðningur við aðila sem vinna að eflingu svæðisbundinna rannsókna og þróunar.Hér er bæði átt við þátttakendur frá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum.
- Möguleikar svæða til að skapa, yfirfæra og hagnýta þekkingu; styrkleikar og veikleikar svæðanna á þessu sviði.
- Þarfir svæðanna þegar kemur að hagþróun.
- Núgildandi áætlanir og stjórnvaldsaðgerðir sem snúa að rannsóknum og þróun; framgangur þeirra og áhrif.
- Evrópskt og alþjóðlegt samhengi.
- Tækifæri til að samnýta og læra af reynslu annarra.
- Handleiðsla og samvinna milli þátttakenda í rannsóknaþungum klösum á tilteknu svæði.
Handleiðsla þar sem vanþróaðri svæði læra af svæðum sem náð hafa árangri í sköpun og hagnýtingu rannsókna og þróunar.
Skipulagning viðburða, svo sem ráðstefna, funda, námskeiða, kannana; starfsmannaskipti, miðlun reynslu úr verkefnum sem náð hafa árangri; skilgreiningar, skipulag og stjórnun samvinnuverkefna.
Verkefni sem auka samþættingu.
- Auknir möguleikar til að stunda og hagnýta rannsóknir; auknir möguleikar fyrir vísindafólk á vinnumarkaði.
- Stuðningur við og endurbætur á innviðum til rannsókna og þróunar.
- Stuðningur við rannsóknaverkefni.
- Tengslamyndun milli rannsóknastofnana og fyrirtækja, sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
- Stuðningur við aukna miðlun þekkingar milli rannsóknastofnana og fyrirtækja, sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
- Aukið aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að þjónustu og fjármagni til rannsókna og þróunar.
- Gerð viðskiptaáætlana; skipulagning fjármögnunar.
- Upplýsingamiðlun, svo sem ráðstefnur, námskeið, birtingar eða heimasíður.
Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 126 milljón.

English

