Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » 7rá » UNDIRSTÖÐUR » Vísindi í samfélaginu

Vísindi í samfélaginu

Markmið
Áætlunin styður aðgerðir sem miða að samþættingu rannsókna- og tæknistefnu við aðra þætti evrópsks samfélags í því augnamiði að skapa skilvirkt og lýðræðislegt þekkingarsamfélag.

Til hvers?
Áætluninni er ætlað að hvetja til umhugsunar og umræðu um vísindi og tækni og áhrifa þeirra á evrópskt samfélag og menningu og efla þannig möguleikann á nýtingu þekkingar til nýsköpunar.

Áætlunin styður eftirfarandi þætti:

  • Aðgerðir og verkefni sem taka mið af stefnumiðum áætlunarinnar.
  • Samstarf milli þátttökuríkja til greiningar sameiginlegra markmiða, byggðum á aðferðum við opna samræmingu (OMC).
  • Lögð verður áhersla á að tekið verði tillit til hugmyndafræðinnar sem fram kemur í stefnunni um Vísindi í samfélaginu í öðrum áætlunum 7. RÁ og samræmingar þar á milli, svo og við aðrar mennta- og menningaráætlanir ESB.

Áherslusvið

  • Efling samskipta vísinda og samfélags:
    Rannsóknir á siðfræði vísinda og tækni.
    Gagnvirk tengsl vísinda og menningar.
    Vettvangur upplýstrar samræðu um samspil siðfræði og vísinda.
  • Auknir möguleikar og víðsýni:
    Bætt staða kvenna á vettvangi vísinda
    Stuðningur við víðtæka vísindamenntun í skólum, vísindamiðstöðum, -söfnum og víðar.
    Tengsl vísindanáms og starfsþróunar í vísindum
  • Miðlun upplýsinga um vísindi og samfélag:
    Efling Evrópuvíddar í viðburðum er tengjast vísindum og almenningi.
    Áhersla lögð á sér-evrópsk viðhorf á opinberum vísindasamkomum.
    Verðlaun fyrir framlag til vísinda.

Ráðstöfunarfé
Umfang áætlunarinnar verður € 330 milljónir.


Rannísdagatal


  • Rannís - 7. rannsóknaráætlun ESB
<