Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf

Alþjóðastarf

Alþjóðasvið Rannís veitir upplýsingar um alþjóðlegt samstarf á sviði rannsókna og nýsköpunar og styður við þátttöku íslenskra aðila í alþjóðasamstarfi.  

Hér er að finna almennar upplýsingar um alþjóðlega sjóði og áætlanir sem Rannís hefur umsjá með fyrir hönd Íslands. Alþjóðasvið Rannís veitir einnig almennar upplýsingar og ráðgjöf um styrkjamjöguleika Íslendinga erlendis.  

7. rannsóknaáætlunin

Eitt helsta verkefni alþjóðasviðs Rannís er að hafa umsjón með 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins fyrir hönd Íslands. Í því felst að Rannís sér um kynningar á áætluninni og veitir upplýsingar um áhersluatriði og umsóknarfresti. Rannís hefur umsjón með starfi landstengla áætlunarinnar og heldur utan um fundarsetu stjórnarnefndarfulltrúa undiráætlana.

7. rannsóknaáætlunin skiptist í fjórar stoðir, Samvinnu, Hugmyndir, Mannauð og Undirstöður, sem síðan skiptast í nítján undiráætlanir sem allar hafa eigin vinnuáætlun, fjármagn og landstengil. Nánar á heimasíðu 7. rá á Íslandi 


 

 

 

 

 

 


Starfsmenn alþjóðasviðs

Aðalheiður Jónsdóttir
kynningarstjóri og sérfræðingur
515 5806

Elísabet M. Andrésdóttir
sviðsstjóri
515 5809

Helga Rún Viktorsdóttir
sérfræðingur 
515 5820

Katrín Valgeirsdóttir
sérfræðingur
515 5811

Viðar Helgason
sérfræðingur
515 5813

Tenglar

 FP7 logo

EEN logo

Evropusamvinna litil


  • Rannís
<