Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Organization, EMBO – http://www.embo.org) veita ýmsa styrki til vísindamanna er stunda rannsóknir í sameindalíffræði og skyldum greinum.
Meðal annarra eru styrkir til vísindamanna sem starfa í Evrópu og Ísrael til skemmri (allt að 3 mánaða) eða lengri dvalar (allt að 2 ár) við erlendar rannsóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Einnig eru sérstakir styrkir til ungra vísindamanna sem eru að hasla sér völl með eigin rannsóknastofur eftir að hafa starfað sem nýdoktorar (Postdoctoral Fellow).
Auk þess veitir EMBO styrki til að fara á námskeið og ráðstefnur og einnig til að fá gestafyrirlesara á ráðstefnur.
Styrkir til lengri dvalar (12-24 mánuðir)
Styrkir til skemmri dvalar (allt að 3 mánuðir)
Styrkir vegna gestafyrirlesara
Styrkir til ungra vísindamanna
NÝJUNG HJÁ EMBO - EMBO CONFERENCE SERIES
Frekari upplýsingar um styrki EMBO veitir Katrín Valgeirsdóttir hjá Rannís, katrin@rannis.is
Einnig má fá nánari upplýsingar um starfsemi EMBC og EMBO hjá Eiríki Steingrímssyni, prófessor, Lífefna- og sameindalíffræðistofu, Læknadeild, Háskóla Íslands, sími 525 4270, netfang eirikurs@hi.is

English

