European Science Foundation

Evrópska vísindastofnunin - ,,European Science Foundation - ESF''
Evrópska vísindastofnunin (ESF) stuðlar að þróun vísinda með því að koma á tengslum færustu vísindamanna og fjármögnunarstofnana til þess að ræða, skipuleggja og hrinda í framkvæmd samevrópskum aðgerðum á sviði vísinda og vísindastefnu.
ESF er samband 67 stórra landsbundinna fjármögnunar- og vísindastofnana sem helgaðar eru vísindalegum grunnrannsóknum í 24 löndum. Rannsóknarmiðstöð Íslands er aðili að ESF. Stofnunin er fulltrúi fyrir allar greinar vísinda: eðlisfræði og verkfræði, líffræði og umhverfisfræði, læknisfræði, hugvísindi og félagsfræði. Stofnunin styður aðildarsamtökin einkum á tvennan hátt: Með því að leiða saman vísindamenn með vísindaverkefnum sínum, netum og evrópskum rannsóknaráðstefnum til þess að vinna að sameiginlegum áhugamálum og með sameiginlegum rannsóknum á málefnum sem eru þýðingarmikil fyrir evrópska vísindastefnu.
Stofnunin heldur uppi nánu sambandi við aðrar vísindastofnanir innan og utan Evrópu. Með starfsemi sinni skapar ESF virðisauka með samvinnu og samræmingu sem nær út yfir landamæri og viðleitni einstakra þjóða, býður vísindalega sérfræðiráðgjöf í mikilvægum málum og skapar evrópskan umræðuvettvang fyrir grunnvísindi.
Starfshættir ESF
Stofnunin leitast við að gegna því hlutverki sínu að efla grunnvísindi í Evrópu og beitir til þess fimm meginaðferðum.
Könnunarvinnustofur og vísindanet eru fjármögnuð af grunnfjárhagsáætlun ESF en vísindaáætlanir og evrópsk samstarfsverkefni eru fjármagnaðuð af aðildarstofnunum (nema á undirbúningsstigi).
Fastanefndir ESF
Innan ESF eru nú starfandi 5 fastanefndir (Standing Committees) á meginsviðum vísinda. Fastanefndir ná yfir stórt svið vísindagreina [evrópsku rannsóknarráðin í læknisfræði (EMRC), fastanefndin í líf- og umhverfisfræði (LESC), fastanefndin í eðlisfræði og verkfræði (PESC), fastanefndin í hugvísindum (SCH) og fastanefndin í félagsfræði (SCSS)]. Meðlimir þeirra eru skipaðir af aðildarstofnununum. Þær fylgjast með starfsemi ESF, hver á sínu sviði, koma á fót starfshópum fyrir tiltekin verkefni og gera tillögur um stuðning við rannsóknir. Fastanefndirnar vinna saman að því að styðja þverfaglegar rannsóknir og mál sem almennur áhugi er fyrir.
Fulltrúar RANNÍS í fastanefndum ESF eru:
- Olgeir Sigmarsson - Standing Committee for Life and Environmental Sciences – LESC
- Fjóla Jónsdóttir - Standing Committee for Physical and Engineering Sciences - PESC
- Jóna Freysdóttir - Standing Committee for Medical Science – EMRC
- Jón Ólafsson - Standing Committee for the Humanities – SCH
- Þorlákur Karlsson - Standing Committee for the Social Sciences – SCSS
Framkvæmdaráð ESF
Í framkvæmdaráði ESF sitja forseti, varaforseti og minnst einn kjörinn fulltrúi frá hverju landi sem á aðildarstofnun í ESF. Prófessor Guðrún Nordal er fulltrúi Íslands í framkvæmdaráðinu.
Nánari upplýsingar um ESF er hægt að nálgast á skrifstofu RANNÍS. Stjórnunarlegur fulltrúi í ESF er Magnús Lyngdal Magnússon. Einnig er hægt að fá ítarlegar upplýsingar um ESF og starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu ESF.

English

