Beint á leiðarkerfi vefsins

EUROCORES

EUROCORES

Á vegum Evrópsku vísindastofnunarinnar (ESF) eru nokkur EUROCORES verkefni sem Rannís er aðlili að. Íslenskir vísindamenn og stofnanir geta sótt um styrki til samstarfs við starfsfélaga sína í Evrópu undir þessum hatti. ESF styrkir kostnað af samstarfi og kynningu niðurstaðna en sjóðir í heimalöndunum styrkja sjálfar rannsóknirnar sem fara fram.

Umsóknum skal skila til ESF áður en auglýstur frestur rennur út. Fagráð á vegum ESF sér um að meta og flokka umsóknir. Þær eru síðan sendar ásamt mati og röðun ESF til sjóða í þátttökulöndunum. Stjórnir þeirra taka afstöðu til hvort styrkja eigi þann hluta rannsóknanna sem fellur til í þeirra landi.

Til að umsókn sé gild þurfa vísindamenn frá í það minnsta þremur aðildalöndum EUROCORES áætlunarinnar að taka þátt í umsókninni.

Athygli íslenskra þátttakenda skal vakin á því að þeir þurfa að fylgja reglum íslenskra sjóða - Rannsóknasjóðs, Tækniþróunarsjóðs eða annarra sem taka þátt í hverri áætlun um sig - þegar þeir vinna sinn hluta umsóknar og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Rannís til að fá nánari upplýsingar.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Jónasson, hallgrimur@rannis.is og Magnús L. Magnússon, magnus@rannis.is

 


  • Rannís
<