Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

29.2.2008

Lagt til að hraða þróun vetnistækninnar

Flýta ætti þróun á notkun vetnis til eldsneytis, samkvæmt niðurstöðum evrópsks rannsóknaverkefnis sem styrkt er af 6. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins, en með því mætti minnka heildarolíunotkun á bifreiðar um 40% frá og með nú til ársins 2050.

26.2.2008

Styrkir á vegum NordForsk

NordForsk auglýsir styrki til norræns rannsóknasamstarfs.

19.2.2008

COST - Opin lýsing eftir umsóknum um ný netverkefni

Skilafrestur for- umsókna til nýrra COST netverkefna er til 28. mars 2008, en þá verður u.þ.b. 75 umsækjendum boðið að senda inn fullgerða umsókn fyrir 20. maí 2008, en um 25 ný netverkefni verða þá valin.   http://www.cost.esf.org/index.php?id=721

15.2.2008

Könnun á högum rannsóknafólks - taktu þátt!

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur fyrir könnun á högum rannsóknafólks með tilliti til vistaskipta á milli landa – sérstaklega til og innan Evrópu. Könnuninni er ætlað að safna saman upplýsingum um hvaða þættir hamla helst flutningi rannsóknafólks og valda því að Evrópa nýtir ekki sem skyldi getu og möguleika sína í rannsóknum-og nýsköpun.

14.2.2008

7. rannsóknaáætlunin eins árs

Nú þegar ár er liðið frá því að 7. rannsóknaáætluninni var hleypt af stokkunum, er ESB nokkuð ánægt með framkvæmdina. Vart er vaxandi tilhneigingar til að úthýsa umsjón með undiráætlunum rannsóknaáætlunarinnar að hluta eða að öllu leyti og telur Janez Potocnik, yfirmaður stjórnardeildar vísinda og rannsókna hjá ESB, að það muni verða gert í auknum mæli og umsjón færð til ýmissa undirstofnana Framkvæmdastjórnarinnar.

11.2.2008

HERA-fundur í París - ferðastyrkir

HERA er samstarf 15 stofnana sem fjármagna rannsóknir í hugvísindum og lýkur árið 2009 með sameiginlegri markáætlun í hugvísindum. "Matchmaking-fundur" samstarfsins verður haldinn í París 19. apríl nk. en nú eru í fyrsta skipti í boði sérstakir ferðastyrkir (500 evrur). Umsóknarfrestur er til 28. febrúar. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu HERA, www.heranet.info.

29.1.2008

Alþjóðleg ráðstefna um endurnýjanlega orku

Ráðstefnan Washington International Renewable Energy Conference (WIREC 2008) verður haldin 4.-6. mars 2008 í Bandaríkjunum. Ráðstefnan er mikilvæg fyrir stefnumótendur í orkumálum í heiminum og er búist við að um 5000 gestir, fyrirlesarar og sýnendur frá 150 löndum sæki viðburðinn. Nánari upplýsingar á ensku hér að neðan og einnig á  www.americanrenewables.org, þar sem gestir og sýnendur fá allar frekari upplýsingar.

25.1.2008

Evrópumiðstöð Impru á Sjávarútvegssýningunni í Brussel

Dagana 22.- 24. apríl nk. verður sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe í Brussel.

24.1.2008

Fyrsti skiladagur Eurostars umsókna er 8 febrúar 2008.

Þann 8 febrúar kl 17 00  er skilafrestur Eurostars umsókna.  Eurostars áætlunin opnaði 2. október 2007 og var kynnt á opnum fundi 27 nóvember 2007 hjá Samtökum iðnaðarins.  Hér er um nýjan möguleika fyrir sprotafyrirtæki sem stunda sjálf rannsóknir að sækja fjármagn til nýskapandi r&þ verkefna.

Sjá http://www.rannis.is/althjodastarf/eurostars/

10.1.2008

Sérfræðinga vantar á skrifstofu COST í Brussel

COST auglýsir eftir sérfræðingum til að vinna með sviðsnefndum á skrifstofu COST í Brussel. Umsóknarfrestur er 16. janúar.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<