Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

15.12.2003

Kynningarfundur á Akureyri

Kynningarfundur um möguleika einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og háskóla í 6. rannsóknaáætlun ESB verður haldinn, í Háskólanum á Akureyri, Sólborg, stofu L103, miðvikudaginn 17. desember 2003, kl. 13:00-14:30

10.12.2003

Auglýst eftir hugmyndum um sérfræðingaskóla í hafrannsóknum

NorFA og samstarfsnefnd um norrænar hafrannsóknir (NAF) auglýsa eftir hugmyndum um norrænan sérfræðingaskóla á sviði hafrannsókna. Skólar sem verða fyrir valinu gætu fengið allt að 20 m.ísl.kr. á ári í fimm ár.

10.12.2003

Fimm sérfræðingaskólar NorFA í hug- og félagsvísindum

Fimm sérfræðingaskólar í hug- og félagsvísindum hefja starfsemi með stuðningi frá NorFA. Hver skóli fær um 10 m.ísl.kr. á ári í fimm ár.

3.12.2003

Fréttapunktar um rannsóknir frá Brussel

Fréttir um rannsóknir frá Evrópusambandinu.

26.11.2003

Tækifæri í tækninýjungum og þekkingaruppbyggingu: Efnis-, framleiðslu- og örtækniDAGAR á Íslandi

Dagana 3.- 4. desember munu RANNÍS, Samtök iðnaðarins og Iðntæknistofnun standa fyrir ráðstefnu um örtækni og styrkjaáætlun ESB um Efnis-, framleiðslu- og örtækni.

21.11.2003

Engir nýir styrkir 2004 hjá NOS-HS

Norræna samstarfsnefndin í hug- og félagsvísindum (NOS-HS) ákvað á fundi þann 7. nóvember að auglýsa enga nýja styrki til umsóknar vorið 2004 eins og til stóð. Ástæðan er endurskipulagning á úthlutunarstefnu nefndarinnar.

Allar fyrri skuldbindingar verða virtar.

Sjá nánar á heimasíðu NOS-HS: www.nos-nop.org

21.11.2003

Styrkur til MS náms í fiski-/erfðafræði

Hafrannsóknastofnunin og Háskóli Íslands auglýsa til umsóknar styrk til MS náms í fiski/erfðafræði þorsks. Styrkurinn er ætlaður til rannsókna á breytingum á erfðasamsetningu þorsks við Ísland á síðustu öld. Í verkefninu verður notast við nýja tækni sem byggir á greiningu erfðaefnis í vefjaleifum kvarna.

18.11.2003

Staða yfirmanns í læknavísindum hjá ESF laus til umsóknar

Laus er til umsóknar staða yfirmanns í læknavísindum hjá European Science Foundation (ESF). Umsóknafrestur er 15 nóvember 2003 og ráðið verður í stöðuna í byrjun árs 2004.

17.11.2003

Norræn öndvegissetur í sameindalíffræði

Áætlun um norræn öndvegissetur í sameindalíffræði á sviði heilbrigðis- og lífvísinda var hleypt af stokkunum í nóvember. Áætlunin tekur til áranna 2004 - 2009 og er sameiginlegt verkefni norrænu samstarfsnefndarinnar á sviði læknisvísinda (NOS-M), norrænu ráðherranefndarinnar og NorFA.

13.11.2003

Hádegisbíó - Hvað er örtækni?

Vegna góðra undirtekta mun RANNÍS, Iðntæknistofnun og Tækniháskóli Íslands að öðru sinni standa fyrir sýningu á myndinni, Hvað er örtækni?. Sýningin fer fram mánudaginn 17. nóvember,  kl. 12:00 - 13:00, í Tækniháskóla Íslands, stofu 339.  Ingólfur Þorbjörnsson, forstöðumaður Efnis-og Umhverfisdeildar Iðntæknistofnunar flytur inngangsorð. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<