Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

30.11.2004

Val forumsókna í ö-netaáætlun NOS-HS

Alls bárust 49 forumsóknir í ö-netaáætlun Norrænu samstarfsnefndarinnar í hug- og félagsvísindum. Á fundi þann 23. nóvember síðastliðinn valdi stjórnarnefnd áætlunarinnar 18 umsækjendur sem verður boðið að senda inn fullbúna umsókn fyrir 15. febrúar 2005.

25.11.2004

Upplýsingaveita um stuðning og áætlanir Evrópusambandins við Evrópska upplýsingatækniþjóðfélagi

Framkvæmdastjórnin heldur úti sérstakri vefgátt um víðtækan stuðning áætlanna Evrópusambandins við  þróun og nýtingu upplýsingatækninnar  svo sem með Upplýsingatækniáætlun 6. RÁ, eTen, eContent, Safer Internet og fleira.

22.11.2004

ESF auglýsir laust starf deildarstjóra

Evrópskra vísindastofnunin (ESF) auglýsir laust starf deildarstjóra á sviði eðlis- og verkfræði

20.11.2004

Rannsóknir á sviði félagsvísinda

Rannsóknir til stuðnings stefnumiðum í 6. rannsóknaáætlun ESB auglýsir eftir rannsóknaverkefnum, annars vegar um undirliggjandi þátttum búferlaflutninga og fólksflótta og hins vegar þróun og orsakir glæpa.

20.11.2004

Næstu umsóknir í hug-og félagsvísindaverkefni í 6. RÁ ESB

Samfélagsáætlun 6. rannsóknaráætlunar ESB hefur birt vinnuáætlun um verkefnastyrki og umsóknarfresti fyrir árið 2005.  Næstu umsóknarfrestir eru 13 apríl 2005 fyrir hefðbundin verkefni og forverkefni og
26. október 2005 fyrir Samþætt verkefni og Öndvegisnet.

17.11.2004

Kynningarfundur um CERN

Dagana 18. og 19. nóvember mun sendinefnd frá Evrópsku rannsóknamiðstöðinni í öreindafræði (CERN) í Genf heimsækja Ísland til að kynna starfsemi stofnunarinnar og ræða við íslenska vísinda- og embættismenn. CERN er stærsta stofnun í heimi á þessu sviði og þar fara einnig fram umfangsmiklar rannsóknir í reiknifræði og ýmsum greinum hagnýtra vísinda. Almennur kynningarfundur um CERN verður haldinn í fundarstofunni inn af matsal Tæknigarðs fimmtudaginn 18. nóvember og hefst hann kl. 14:00. Öllum sem áhuga hafa er hér með boðið að sækja þennan fund.

9.11.2004

Orkuráðstefna 17. nóvember 2004

Ráðstefnan, Nýir möguleikar til orkuöflunar, verður haldin miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8.30-12:00 á Grand Hótel Reykjavík. Það er Orkustofnun sem stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Rannís og fleiri stofnanir og fyrirtæki.

5.11.2004

Ný vinnuáætlun komin í Upplýsingatækniáætlun 6. RÁ ESB

Í vinnuáætluninni koma fram umsóknarfrestir fyrir árið 2005 og 2006 og lýsingar á þeim sviðum sem auglýst verða til umsóknar.

4.11.2004

Námskeið í fjármálastjórnun rannsóknaverkefna í 6. rannsóknaáætlun ESB

Námskeið um fjármálastjórnun rannsóknaverkefna í 6. rannsóknaáætlun ESB verður haldið í Brussel þann 2. desember nk. Skráning skal fara fram fyrir 25. nóvember 2004 og þátttökugjald er 250 €.

2.11.2004

Evrópska rannsóknastarfatorgið opnað á Íslandi

Evrópska rannsóknastarfatorgið á Íslandi var opnað formlega við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 29. október.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<