Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

28.1.2004

Aðstoð við að koma á fót líftæknifyrirtæki

Biobiz er verkefni sem er styrkt af 6. rannsóknaáætlun ESB og er markmið þess að aðstoða rannsóknafólk við að koma á fót lífvísinda- og líftæknifyrirtækjum. Á næstu þremur árum verða haldin námskeið og vinnufundir víða í Evrópu sem aðstoða rannsóknafólk við að ná því markmiði. Fyrsti vinnufundurinn verður haldinn á Bretlandi, í mars 2004.

22.1.2004

Auglýst eftir umsóknum til Descartés verðlaunanna

Rannís vekur athygli á auglýsingu framkvæmdarstjórnar Evópusambandsins eftir umsóknum til Descartés verðlaunanna.

20.1.2004

Endurskoðun á framkvæmdaleiðunum/Instruments í 6. rannsóknaáætlun ESB

Í Brussel er að hefja vinnu sína nefnd sem mun leggja mat á nýju framkvæmdaleiðirnar/Instruments (Network of Excellence og Integrated Projects) sem notaðar eru í 6. rannsóknaáætlun ESB. Einstaklingum, jafnt sem fyrirtækjum, stofnunum og háskólum er boðið að koma á framfæri athugasemdum og uppástungum að því hvað betur mætti fara.

20.1.2004

Gögn af kynningarfundi um styrki ESB á sviði orkumála

Góð mæting var á sameiginlegum kynningarfundi RANNÍS og Orkustofnunar um styrkjaáætlanir Evrópusambandsins á sviði Orkumála. Fundurinn var haldinn á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 20. janúar 2004. Glærum af fundinum hefur verið komið fyrir á Netinu.

19.1.2004

Kynningarfundur um styrki Evrópusambandsins á sviði orkumála

Þriðjudaginn 20. janúar 2004, kl. 8:30-10:30 standa RANNÍS og Orkustofnun fyrir kynningarfundi um styrki Evrópusambandsins á sviði orkumála. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<