Alþjóðastarf
22.12.2005
Jules Verne 2006-2007 - Úthlutun til samstarfsverkefna
Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Menntamálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins. Tilgangurinn með samstarfinu er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og að auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu. Styrkir eru veittir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn. Önnur fjármögnun nauðsynleg til verkefnisins verður að koma frá stofnunum sjálfum sem taka þátt í samstarfinu eða eftir öðrum leiðum. Fjármögnunin er samþykkt til tveggja ára í senn.
9.12.2005
Markfæði - norrænir styrkir
Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) hefur undanfarin ár veitt styrki til nýsköpunar í matvælaiðnaði. Að þessu sinni er áherslan sett á markfæði (functional food). Markfæði eru matvæli sem eiga það sameiginlegt að þeim hefur verið breytt í þeim tilgangi að þau hafi jákvæðari heilsusamleg áhrif á neytandann en matvælin óbreytt.
8.12.2005
Evrópska rannsóknastarfatorgið
Á skrifstofu RANNÍS er útibú Evrópska rannsóknastarfatorgsins. Þar er að finna m.a. upplýsingar um störf í boði í rannsóknum í Evrópu og upplýsingar um þá aðstoð sem hægt er að sækja í viðkomandi landi. Auk þess veitir skrifstofan erlendu vísindafólki sem starfar á Íslandi aðstoð og upplýsingar.
9.11.2005
Alþjóðleg ráðstefna um næringu, heilsu og fæði
Ráðstefna 15-16. mars 2006, Danmörku
Centre for Advanced Food Studies stendur fyrir ráðstefnunni LMC International Food Congress 2006 sem haldin verður í Royal Veterinary og Agricultural University (KVL) í Danmörku 15-16.2006.
3.11.2005
Ísland áhugaverður kostur í samstarfi Kanada og Norðurlandanna í vísindum
Í skýrslu kanadíska Alþjóðaviðskiptaráðsins kemur fram að Íslendingar eru álitnir sérstaklega áhugaverðir samstarfsaðilar á sviði jarðvísinda, þar sem Íslendingar hafa mikla sérþekkingu og mikil áhrif á þessu sviði.
27.9.2005
Tillögur að undiráætlunum 7. rannsóknaáætlunar ESB birtar
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birtir tillögur að einstökum forgangssviðum og öðrum undiráætlunum sjöundu rannsóknaáætlunarinnar fyrir árin 2007-2013
19.8.2005
Gervigreind í Vísindaveröldinni
Sunnudaginn 21. ágúst munu starfsmenn og nemar við Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík kynna ungu fólki hvernig búa má til vitverur og vélmenni.
18.8.2005
Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu
Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL - European Molecular Biology Laboratory (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar nú sótt um námsdvöl við stofnunina.
16.8.2005
Wood-Whelan Research Fellowships - rannsóknastyrkir til lífefnafræðinga
The International Union of Biochemistry and Molecular Biology (IUBMB) og International Council of Scientific Unions (ICSU) veita styrki sem kenndir eru við Harland G. Wood fyrrverandi forseta alþjóðalífefnafræði- og sameindalíffræðisambandsins (IUBMB) og William J. Whelan fyrrverandi aðalritara þess. Á heimasíðu IUBMB er að finna allar nánari upplýsingar http://www.iubmb.org
12.8.2005
Jules Verne - Umsóknarfrestur 5.september 2005
Lausir eru til umsóknar styrkir til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðilla á grundvelli Jules Verne samstarfssamnings. Umsóknarfrestur er 5. september 2005.


English

