Alþjóðastarf
18.1.2005
NordForsk – ný norræn stofnun sem styður við rannsóknastarf
NordForsk er ný sjálfstæð norræn stofnun sem styrkir rannsóknarstarf og vísindamenntun á Norðurlöndum, stofnuð 1. janúar 2005 og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. NorFA, sem gengt hefur hliðstæðu hlutverki hingað til verður frá og með sama tíma hluti af NordForsk.
Á árinu 2005 er reiknað með að NordForsk veiti um 60 til 70 milljónir norskra króna í styrki til samstarfs á sviði rannsókna- og vísindamenntunnar, þar á meðal einnig þeirra þátta og verkefna sem NorFa styrkti áður
17.1.2005
Kynningarfundur - Styrkir til rannsóknaverkefna í upplýsingatækni
Kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 21. janúar 2005 í Háskólanum í Reykjavík á fjórðu lýsingu eftir umsóknum, 93 milljarðar isl.kr. í boði. Rannís heldur fundinn í samvinnu við Háskólann í Reykjavík, Samtök iðnaðarins, Háskóla Íslands og Rannsóknaþjónustu HÍ. Sérstakur gestafyrirlesari á fundinum verður Oluf Nielsen vísindafulltrúi Upplýsingatækniáætlunar ESB. Hægt er að panta 30 mín. viðtöl við Oluf Nielsen. Viðtölin fara fram á skrifstofu RANNÍS eftir hádegi sama dag.


English

