Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

22.12.2005

Jules Verne 2006-2007 - Úthlutun til samstarfsverkefna

Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Menntamálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins. Tilgangurinn með samstarfinu er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og að auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu. Styrkir eru veittir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn. Önnur fjármögnun nauðsynleg til verkefnisins verður að koma frá stofnunum sjálfum sem taka þátt í samstarfinu eða eftir öðrum leiðum. Fjármögnunin er samþykkt til tveggja ára í senn.

9.12.2005

Markfæði - norrænir styrkir

Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) hefur undanfarin ár veitt styrki til nýsköpunar í matvælaiðnaði. Að þessu sinni er áherslan sett á markfæði (functional food). Markfæði eru matvæli sem eiga það sameiginlegt að þeim hefur verið breytt í þeim tilgangi að þau hafi jákvæðari heilsusamleg áhrif á neytandann en matvælin óbreytt.

8.12.2005

Evrópska rannsóknastarfatorgið

Á skrifstofu RANNÍS er útibú Evrópska rannsóknastarfatorgsins.  Þar er að finna m.a. upplýsingar um störf í boði í rannsóknum í Evrópu og upplýsingar um þá aðstoð sem hægt er að sækja í viðkomandi landi.  Auk þess veitir skrifstofan erlendu vísindafólki sem starfar á Íslandi aðstoð og upplýsingar.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<