Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

26.12.2006

EraSME auglýsir eftir umsóknum til fjölþjóðlegra rannsóknaverkefna

Í samstarfi við rannsóknasjóði frá 13 Evrópuríkjum er stefnt að því að fjármagna íslenska þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum sem unnin eru samstarfi fyrirtækja og rannsóknastofnana.  Tekið verður við umsókum óháð rannsóknasviði.

26.12.2006

Auglýst eftir fyrstu umsóknum í 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins

Ný rannsóknaáætlun Evrópusambandsins sem er sú sjöunda í röðinni tekur gildi nú um áramótin.  Auglýst var eftir fyrstu umsóknum föstudaginn 22. desember.  Umsóknargögn og upplýsingar um áherslusvið hafa því verið gerð opinber.

12.12.2006

ICT í Sjöundu rammaáætlun ESB á CORDIS

Ný heimasíða Evrópusambandsins um áætlun ESB á sviði upplýsinga- og samskiptatækni (Information and Communication Technology)  er  á http://cordis.europa.eu/fp7/ict/

 Drög að vinnuáætlun ICT fyrir 2007 og 2008   voru kynnt á  IST2006 ráðstefnunni og sýningunni sem haldin var í Helsinki dagana 21. til 23. nóvember sl. http://europa.eu.int/information_society/istevent/2006/index_en.htm

6.12.2006

Óskað eftir sérfræðingum til að meta umsóknir í 7.RÁ

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kallar eftir sérfræðingum til að meta umsóknir um styrkir til rannsókna-og þróunarverkefna á öllum sviðum.

6.12.2006

EraSME auglýsir eftir umsóknum frá fyrirtækjum og stofnunum

Fjármögnunaraðilar í 13 evrópuríkjum munu þann 15. desember nk. auglýsa sameiginlega eftir umsóknum sem byggja skulu á samstarfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og rannsóknastofnana. Íslensk fyrirtæki og stofnanir geta lagt inn umsóknir óháðar rannsóknasviði.

25.11.2006

Nordic Spaces - umsóknarfrestur 31.01.2007

Rannsóknaáætlunin Nordic Spaces auglýsir eftir styrkumsóknum til lúta að ,,Myndun og þróun þjóðríkja, samfélaga og svæða, og áhrif menningar og hugmynda á norður Evrópu eftir 1800."

8.11.2006

Góðar hugmyndir frá Vísindavöku

Á nýafstaðinni Vísindavöku var meðal annars boðið uppá að taka þátt í happdrætti þar sem heppinn þátttakandi gat unnið fría áskrift af tímaritinu Lifandi vísindi.  Auk þess að svara léttum spurningum var boðið uppá að koma með hugmynd að verðugu rannsóknaverkefni sem myndi nýtast samfélaginu. Fjölmargar hugmyndir bárust

7.11.2006

Námskeið í umsóknaskrifum í 7 RÁ ESB

Fyrirtækið Hyperion, sem sérhæfir sig rammaáætlunum Evrópusambandsins býður upp á eins dags námskeið í Brussel í lok árs 2006 og upphafi árs 2007, þar sem kennt verður hvernig skrifa á samkeppnishæfa umsókn í 7. RÁ

18.10.2006

Fjárhags- og uppgjörsreglur í 7.rannsóknaáætlun ESB

Þriðjudaginn 24.október mun RANNÍS í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið EFPConsulting standa fyrir námskeiði um fjárhags- og uppgjörsreglur í rannsóknaverkefnum 7. rannsóknaáætlunar ESB. 

16.10.2006

Norræn matargerð - nýsköpunarverkefni

Norræna nýsköpunarmiðstöðin hefur ákveðið að styðja þróun og nýsköpun í matargerð sem byggir á norrænu hráefni, hefðum og menningu. Sérstaklega er leitst við að styrkja samstarf á milli aðila innan matvæla-, ferðamála- og afþreyngariðnaðarins. Heildar upphæð átaksins sem er liður í verkefni norrænu ráðherranefndarinnar ,,Ný norræn matargerð” er um 10 milljónir norskra króna sem mun skiptast á 4-6 verkefni.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<