Alþjóðastarf
29.9.2006
Stjörnu-Oddi þátttakandi í nanótækniáætlun NICe
Stjörnu-Oddi hefur, ásamt stofnunum og fyrirtækjum frá Norðurlöndum, sótt um nanótækniverkefni sem nýlega var samþykkt af NICe,Norrænu Nýsköpunarmiðstöðinni. Nanótækni hversdagsins er þema áætlunarinnar með áherslu á vellíðan, heilsu og öryggi.
http://www.nordicinnovation.net/
25.9.2006
Verðlaun veitt í ljósmynda- og teiknisamkeppnum RANNÍS
Að tilefni Vísindavöku efndi RANNÍS til teiknisamkeppni barna á aldrinum 9-11 ára og til ljósmyndasamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 16-23 ára. Nýherji og Edda útgáfa gáfu verðlaun sem afhent voru á Vísindavökunni föstudaginn 22. september.
25.9.2006
Dr. Ari Ólafsson fyrstur til að hljóta verðlaun RANNÍS fyrir vísindamiðlun
Verðlaun RANNÍS fyrir miðlun vísinda til almennings voru í fyrsta skipti veitt á vísindavökunni sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi, föstudaginn 22. september.
21.9.2006
Vísindakaffi í kvöld kl. 20:00 - Pálmatré við Jökulsárlón?
Dr. Ólafur Ingólfsson, prófessor í jarð- og landafræðiskor Háskóla Íslands og dr. Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands - eru mennirnir sem vita allt um hnattrænar breytingar og hvaða áhrif þær munu hafa á Ísland í framtíðinni.
20.9.2006
Kynningarfundur NordForsk 26. sept
Kynning verður á styrkjaáætlunum NordForsk í Hvammi, Grand Hóteli,
þriðjudaginn 26. september klukkan 8:15 til 10:00.
20.9.2006
Vísindakaffi í kvöld: Má bjóða þér sjálflýsandi svín?
Vísindin á mannamáli! Dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólaseturs á Hornafirði og dr. Einar Mäntylä, plöntusameindaerfðafræðingur kafa ofaní umræðuna um erfðabreytt matvæli yfir kaffibollum á kaffistofu Listasafns Reykjavíkur í kvöld kl. 20:00. Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson
8.9.2006
Nýr umhverfis- og orkurannsóknasjóður
Orkuveita Reykjavíkur, ásamt háskólunum á höfuðborgarsvæðinu, hefur stofnsett sjálfstæðan sjóð sem ætlað er að vera samstarfsvettvangur um orku- og umhverfisrannsóknir. Stofnfjárframlag sjóðsins er eitt hundrað milljónir króna og er stefnt að því að Orkuveitan leggi um hálft prósent af tekjum sínum til sjóðsins árlega.
6.9.2006
Rannsóknastöður Public Learning and Understanding of Science
Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknastöður við hið nýja setur Public Learning and Understanding of Science við Háskólann í Gautaborg og við Chalmers University of Technology í Svíþjóð.
4.9.2006
Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu
Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL - European Molecular Biology Laboratory býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina. Umsóknarfrestur er 1.nóvember 2006.
1.9.2006
Matvæli, næring og heilsa – norrænt öndvegissetur 2006-2011
Þann 1. september 2006 var opnaður umsóknarfrestur í norrænt öndvegissetur á sviði matvæla, næringu og heilsu. NordForsk í samvinnu við norræna rannsóknasjóði mun veita u.þ.b. 2.3 milljónum Evra árlega til verkefnisins á árabilinu 2006-2011.


English

