Alþjóðastarf
23.12.2008
Námsdvöl í Frakklandi fyrir hug- og félagsvísindafólk
Réseau français d'études avancées (lausleg þýðing: Franskt tengslanet æðri mennta) hefur að markmiði sínu að taka á móti erlendum vísindamönnum á sviði hug- og félagsvísinda.
Í tengslanetinu eru fjórar stofnanir sem bjóða hver um sig dvöl allt að einu akademísku ári að lengd. Vísindamönnum er frjálst að vinna að rannsóknum sínum meðan á dvölinni stendur án kvaða af hálfu stofnunarinnar. Einstaklingar jafnt sem hópar vísindamanna geta sótt um rannsóknardvölina. Laun eru samningsatriði milli vísindamanna, atvinnuveitenda þeirra á Íslandi og stofnunarinnar sem dvalið er við í Frakklandi. Ekki er nauðsynlegt að tala frönsku til að taka þátt í verkefninu.
22.12.2008
ESF auglýsir eftir umsóknum í 4 nýjar áætlanir
Evrópska vísindastofnunin, ESF, auglýstir eftir forumsóknum í fjórar nýjar EUROCORES áætlanir. Umsóknarfrestur er í byrjun mars á næsta ári. Hér að neðan eru tenglar á heimasíður ESF með nánari upplýsingum.
1.12.2008
Leiðbeiningar um fjárhags- og uppgjörsreglur 7. rannsóknaráætlunarinnar
21.11.2008
Opnað fyrir umsóknir í nokkrum undiráætlunum 7.rá
18.11.2008
Hvað er 7. rannsóknaráætlun ESB? Umsóknarferlið og hugmyndavinnan - námskeið
12.11.2008
Kynning á upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB
Rannís og Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands efna til morgunverðarfundar um möguleika í upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 14. nóvember kl. 8:30-10:30 á Grand Hótel Reykjavík, Háteig.
5.11.2008
Þróunarsjóður EEA/EFTA auglýsir styrki til samstarfs milli háskóla á Íslandi og í Slóvakíu
Þróunarsjóður EEA/EFTA auglýsir styrki sem miða m.a. að því að auka samstarf milli háskóla á Íslandi og Slóvakíu. Ætlunin er að styrkja verkefni sem byggja á nánara samstarfi milli nemenda, kennara og rannsakenda í gegnum skiptiprógrömm, gerð sameiginlegs náms, skipulagningu námskeiða og fleira. Styrktímabilið er frá og með 1. apríl 2009 til og með 28. febrúar 2011.
30.10.2008
Hversu vel virkar 7. rannsóknaáætlunin?
20.10.2008
Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu
15.10.2008
Enterprise Europe Network hleypt af stokkunum
Nýju samstarfsverkefni Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Útflutningsráðs Íslands var hleypt af stokkunum á fjölmennum kynningarfundi í Húsi atvinnulífsins 10. október sl. Markmið Enterprise Europe Network er að aðstoða fyrirtæki, stofnanir og háskóla að auka samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði með því að finna samstarfsaðila og koma á tengslum milli landa.


English

