Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

29.1.2008

Alþjóðleg ráðstefna um endurnýjanlega orku

Ráðstefnan Washington International Renewable Energy Conference (WIREC 2008) verður haldin 4.-6. mars 2008 í Bandaríkjunum. Ráðstefnan er mikilvæg fyrir stefnumótendur í orkumálum í heiminum og er búist við að um 5000 gestir, fyrirlesarar og sýnendur frá 150 löndum sæki viðburðinn. Nánari upplýsingar á ensku hér að neðan og einnig á  www.americanrenewables.org, þar sem gestir og sýnendur fá allar frekari upplýsingar.

25.1.2008

Evrópumiðstöð Impru á Sjávarútvegssýningunni í Brussel

Dagana 22.- 24. apríl nk. verður sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe í Brussel.

24.1.2008

Fyrsti skiladagur Eurostars umsókna er 8 febrúar 2008.

Þann 8 febrúar kl 17 00  er skilafrestur Eurostars umsókna.  Eurostars áætlunin opnaði 2. október 2007 og var kynnt á opnum fundi 27 nóvember 2007 hjá Samtökum iðnaðarins.  Hér er um nýjan möguleika fyrir sprotafyrirtæki sem stunda sjálf rannsóknir að sækja fjármagn til nýskapandi r&þ verkefna.

Sjá http://www.rannis.is/althjodastarf/eurostars/

10.1.2008

Sérfræðinga vantar á skrifstofu COST í Brussel

COST auglýsir eftir sérfræðingum til að vinna með sviðsnefndum á skrifstofu COST í Brussel. Umsóknarfrestur er 16. janúar.

7.1.2008

Nýjar hugmyndir og framtíðarsýn í upplýsinga- og samskiptatækni - umsóknir og kynningarfundur

Innan upplýsinga- og samskiptatækni í 7. rannsóknaáætlun ESB er hægt að taka þátt í rannsóknum og nýsköpun undir merkjum FET (Future and Emerging Technologies) sem býður upp á að koma með hugmyndir og framtíðarsýn í rannsóknum á sviði upplýsinga- og samskiptatækni. FET styður við frumkvæði varðandi rannsóknahugmyndir, býður upp á að nálgast nýja markhópa og hvetur til þverfaglegrar nálgunar og nýsköpunar á þessu sviði.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<