Alþjóðastarf
23.12.2008
Námsdvöl í Frakklandi fyrir hug- og félagsvísindafólk
Réseau français d'études avancées (lausleg þýðing: Franskt tengslanet æðri mennta) hefur að markmiði sínu að taka á móti erlendum vísindamönnum á sviði hug- og félagsvísinda.
Í tengslanetinu eru fjórar stofnanir sem bjóða hver um sig dvöl allt að einu akademísku ári að lengd. Vísindamönnum er frjálst að vinna að rannsóknum sínum meðan á dvölinni stendur án kvaða af hálfu stofnunarinnar. Einstaklingar jafnt sem hópar vísindamanna geta sótt um rannsóknardvölina. Laun eru samningsatriði milli vísindamanna, atvinnuveitenda þeirra á Íslandi og stofnunarinnar sem dvalið er við í Frakklandi. Ekki er nauðsynlegt að tala frönsku til að taka þátt í verkefninu.
22.12.2008
ESF auglýsir eftir umsóknum í 4 nýjar áætlanir
Evrópska vísindastofnunin, ESF, auglýstir eftir forumsóknum í fjórar nýjar EUROCORES áætlanir. Umsóknarfrestur er í byrjun mars á næsta ári. Hér að neðan eru tenglar á heimasíður ESF með nánari upplýsingum.


English

