Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Fréttir

Alþjóðastarf

30.9.2008

Aldrei fleiri á Vísindavöku

Vísindavaka Rannís var haldin föstudaginn 26. september sl. í Listasafni Reykjavíkur. Aldrei hafa fleiri gestir sótt Vísindavökuna, en um 2000 manns lögðu leið sína í Listasafnið til að hitta vísindamenn og kynnast viðfangsefnum þeirra. Við opnunina voru afhent verðlaun í teiknisamkeppni barna og ljósmyndasamkeppni unga fólksins þar sem efnið var „Vísindin í daglegu lífi", auk þess sem viðurkenning Rannís fyrir framlag til Vísindamiðlunar var veitt. Að þessu sinni hlaut Örnólfur Thorlacius viðurkenninguna.

26.9.2008

Til hamingju með daginn vísindamenn

Vísindavaka 2008 er í dag, föstudaginn 26. september, í tilefni af Degi Evrópska vísindamannsins og er hún haldin á sama tíma í helstu borgum Evrópu. Vísindavakan verður í Listasafni Reykjavíkur kl. 17-22. Við opnunina verða afhent verðlaun í teiknisamkeppni barna og ljósmyndasamkeppni unga fólksins, auk þess sem viðurkenning Rannís fyrir framlag til Vísindamiðlunar verður veitt.

25.9.2008

Fjórða Vísindakaffið er í kvöld!

Fimmtudagur 25. september
Má bjóða þér sláturtertu og rabarbarakaramellur?
Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor við Listaháskóla Íslands, Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður og Guðmundur H. Gunnarsson og Irek Klonowski frá Matís þróuðu frumlegar, listrænar og girnilegar nýjungar í rannsóknasamstarfi við bændur.

24.9.2008

Þriðja Vísindakaffið er í kvöld!

Miðvikudagur 24. september
Náttúruhamfarir - hvað svo? 
Dr. Guðrún Pétursdóttir forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða, Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur hjá áfallaþjónustu LSH, Ragnhildur Guðmundsdóttir og Edda Björk Þórðardóttir frá Miðstöð í lýðheilsuvísindum við HÍ og Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og
Fimm fræknar konur kafa ofan í snjóflóð og undir jarðskorpuna og velta upp sálfræðilegum áhrifum náttúruhamfara.

23.9.2008

Annað Vísindakaffið er í dag!

Þriðjudagur 23. september
Hver á að passa mig?
Alyson Bailes og Silja Bára Ómarsdóttir frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fjalla um öryggismál út frá nýju sjónarhorni – það er alveg öruggt!   
     

22.9.2008

Fyrsta Vísindakaffið er í dag

Mánudag 22. september
Líkami og losti á upphafsöldum kristni
Dr. Clarence E. Glad sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni fjallar um hvernig hugmyndir manna á Vesturlöndum um meinlæti, skírlífi, fjölskyldulíf og samskipti kynjanna hafa mótast út frá orðræðunni um líkama og losta í frumkristni.

18.9.2008

Vísindakaffi 22., 23., 24. og 25. september

Nokkrir af færustu vísindamönnum landsins munu kynna rannsóknir sínar í aðdraganda Vísindavöku 2008. Vísindakaffin verða í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu kl. 20:00-21:30 hvert kvöld. Kynnt verða viðfangsefni fræðanna sem koma okkur öllum við og fá gestir tækifæri til að spyrja og taka þátt í umræðum. Kaffistjóri verður Davíð Þór Jónsson. Nánar á heimasíðu Vísindavökunnar á www.rannis.is/visindavaka Dagskrá Visindakaffikvöldanna er eftirfarandi:

8.9.2008

Lýst eftir umsóknum í 7. rannsóknaáætlun ESB

Þann 3. september var opnað fyrir umsóknir um rannsóknaverkefni í flestum undiráætlunum 7. rannsóknaáætlunar ESB. Lýst hefur verið eftir umsóknum í eftirtaldar undiráætlanir (umsóknarfrestur í sviga):

2.9.2008

Tilnefningar óskast til Vísindamiðlunarverðlauna Rannís

Vísindamiðlunarverðlaun RANNÍS eru veitt einstaklingi fyrir sérstakt framlag til vísindamiðlunar. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi vísindamiðlunar fyrir samfélagið. Frestur til að skila inn tilnefningum er 15. sept. 2008.
Fréttir - RSS

  • Rannís
<