Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin IASC
Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) og íslenskar norðurslóðarannsóknir
Rannís er formlegur aðili að IASC, sem hóf starfsemi 1991. Nefndin sameinar opinberar stofnanir og samtök á sviði norðurslóðavísinda í 19 ríkjum. Sem slík er hún mikilvægur samstarfsvettvangur fyrir rannsóknir og vöktun á norðurslóðum. Hér er að finna yfirlit yfir þátttöku Rannís í alþjóðlegu samstarfi um norðurslóðarannsóknir.
Nýlega hafa verið gerðar gagngerar breytingar á uppbyggingu og starfsemi IASC m.a. til að auka og efla þátttöku vísindamanna í starfsemi samtakanna. Snemma á árinu 2010 samþykkti IASC að setja á fót fimm vinnuhópa og bjóða öllum aðildarlöndunum að skipa allt að tvo sérfræðinga/vísindamenn í hvern vinnuhóp.
Vinnuhóparnir eru á eftirfarandi sviðum:
- Landupplýsingar (Terrestrial Working Group)
- Freðhvolf (Cryosphere Working Group)
- Hafvísindi (Marine Working Group / Arctic Ocean Sciences Board (AOSB))
- Gufuhvolf (Atmosphere Working Group)
- Mann- og félagsvísindi (Social and Human Working Group)
Aðildarlöndin sjálf ráða því hvaða vinnuhópum þau taka þátt í og hvort þau skipi einn eða tvo í hvern hóp. Vinnuhóparnir munu fá ákveðna fjárhæð frá IASC á ári (ca. 30.000 $) en aðildarlöndin greiða ferðir á fundi. IASC mun sjá vinnuhópunum fyrir aðstoð svo sem ritara og hjálp við að setja upp heimasíðu o.fl. Í haust er áætlað að halda sameiginlegan fund vinnuhópanna og mun IASC greiða uppihald en aðildarlöndin ferðakostnaðinn.
Kynningarfundur á Íslandi 8. júní 2010
Þann 8. júní 2010 var haldinn kynningarfundur með vísindamönnum á Íslandi um Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndina (IASC) og íslenskar norðurslóðarannsóknir.
Með fundinum var fyrst og fremst verið að kanna áhuga íslensks vísindasamfélags að taka þátt í starfsemi IASC, þ.e. vinnuhópunum, kynna starfsemi IASC og varpa ljósi á möguleika og tækifæri íslenskra stofnana og vísindamanna til norðurslóðarannsókna og á hvern hátt Ísland getur lagt sinn skerf til alþjóðlegrar þekkingar á sviðinu. Hér er tengill í heimasíðu IASC.
Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður RANNÍS, stýrði fundinum og kynnti þátttöku RANNÍS í samstarfi um norðurslóðarannsóknir.
Eftirfarandi erindi voru flutt á fundinum og hægt er að nálgast kynninguna með því að smella á nafn fyrirlesara:
- Kristján Kristjánsson, Háskólanum í Reykjavík og fyrrverandi forseti IASC kynnti IASC, vinnuhópana og tækifæri íslensks vísindasamfélags til þátttöku.
- Þorsteinn Gunnarsson, RANNÍS, kynnti Samvinnunefnd um málefni norðurslóða.
- Anna Kristín Daníelsdóttir, Matís, kynnti tengsl 7. rannsóknaáætlunar Evrópusambandsins við norðurslóðarannsóknir.
Í lok fundarins voru almennar umræður þar sem þátttakendur mátu m.a. mikilvægi þess að taka þátt í starfi vinnuhópa IASC. Eftirtaldir vísindamenn fjölluðu um vinnuhópa IASC:
- Bjarni Diðrik Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landupplýsingar.
- Helgi Björnsson, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Freðhvolf.
- Steingrímur Jónsson, Háskólanum á Akureyri/Hafrannsóknastofnun, Hafvísindi.
- Embla Eir Oddsdóttir, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Mann- og félagsvísindi
Í máli þeirra allra kom fram stuðningur við þær breytingar sem verið er að gera á skipulagi og starfsemi IASC og þau lögðu öll áherslu á virka þátttöku íslenskra vísindamanna í starfsemi IASC. Rannís mun á næstunni leggja fram tillögur um hvernig þátttöku Íslands í IASC verður háttað.

English

