Slóð:

Alþjóðastarf » Jules Verne

Jules Verne

Jules Verne samstarf við Frakkland

Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís hefur umsjón með framkvæmdinni.

Auglýst er eftir umsóknum um íslensk-frönsk samstarfsverkefni á sviði vísinda og tækni. Styrkirnir eru ætlaðir til að greiða ferða- og dvalarkostnað vegna gagnkvæmra heimsókna.

Næsti umsóknarfrestur er 17. september 2013.

Í ár verður lögð áhersla á verkefni á sviði jarðhitarannsókna, rannsókna á norðurslóðum og jarð- og lífvísinda.


Eyðublöð og upplýsingar um úthlutanir:

Úthlutun 2009                         Umsóknareyðublöð
Úthlutun 2007   Ferðaheimildarform
Úthlutun 2005    

Úthlutun 2003

   

 

 

 

 

Tilgangur Jules Verne

Tilgangurinn með samstarfinu er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og að auðvelda samstarf við önnur samstarfsverkefni í Evrópu 

Viðfangsefni rannsóknaverkefnis

Vísindamenn á öllum sviðum grunnvísinda og hagnýtra rannsókna geta sótt um, en sérstakar áherslur á ákveðin fræðasvið eru kynntar hverju sinni. Rannsóknastofnanir og rannsóknahópar á háskólastigi geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk.

Reglur um umsóknir

Stofnunum sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn hver fyrir sig umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón með Jules Verne samstarfinu í hvoru landi fyrir sig. Í umsókninni skal vera lýsing á verkefni samstarfsaðilanna sem síðan verður metið í sitt hvoru lagi í Frakklandi og á Íslandi. Framkvæmdaaðilar beggja landa koma síðan saman og ákveða í sameiningu þá styrkveitingu sem samstarfsverkefnið skal hljóta, í samræmi við sameiginlega hagsmuni. 
Athugið að aðeins koma til greina umsóknir sem lagðar eru fram af báðum aðilum hvor í sínu landi. Af gefnu tilefni er mælt með því að íslenskir umsækjendur fylgist með því hvort franski samstarfsaðilinn hafi einnig lagt inn umsókn í Frakklandi.

Fjármögnun

Styrkir eru veittir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn. Önnur fjármögnun til verkefnisins verður að koma frá stofnununum sjálfum sem taka þátt í samstarfinu eða eftir öðrum leiðum. Fjármögnunin er samþykkt til tveggja ára í senn. Við verkefnislok þurfa styrkþegar að skila ítarlegri skýrslu um vísindalega og fjárhagslega niðurstöðu verkefnisins sem og möguleikum á áframhaldandi samstarfi. Lokaskýrslu skal skila inn eigi síðar en þremur mánuðum eftir að verkefni lýkur. Styrkir veittir íslenskum aðilum eiga að nægja til að greiða ferða- og dvalarkostnað ásamt ferðatryggingu vegna dvalar þeirra í Frakklandi.  

Athugið

Egide borgar ferðatryggingu erlendis fyrir vísindamenn að því tilskyldu að þeir gefi upp nákvæmar dagsetningar með viku fyrirvara; að öðrum kosti er viðkomandi boðið upp á að sjá sjálfur um ferðastryggingu sína. 

Umsjón með Jules Verne hjá Rannís hefur Elísabet M Andrésdóttir, netfang: elisabet.andresdottir@rannis.is, sími 515 5809.


Nánari upplýsingar

Elísabet M Andrésdóttir

Alþjóðasviði Rannís
Sími: 515 5809 

Sendiráð Frakklands
Menningar- og vísindadeild
Túngötu 22
101 Reykjavík 
Sími: 575 9603
Netfang: amb.fran@itn.is  

 

 

 

Samstarf við Frakkland

Rammasamningur Frakklands og Íslands

Fyrir Ísland:
Rannís
Laugavegi 13
101 Reykjavík 
Netfang: rannis@rannis.is

Fyrir Frakkland:
Campus France
Heimasíðan er hér
  
 

 

 

 

  • Rannís