Slóð:

Alþjóðastarf » Norrænt rannsóknasamstarf

Norrænt rannsóknasamstarf

Norræna rannsóknaráðið - NordForsk

Norræna rannsóknaráðið er sjálfstæð norræn stofnun sem styrkir rannsóknarstarf og vísindamenntun á Norðurlöndum. Hún var stofnuð 1. janúar 2005 og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Stjórnarformaður  NordForsk er Guðrún Nordal  prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Nánar hér.

Norræna nýsköpunarmiðstöðin - NICe

Hlutverk Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar (Nordisk Innovations Center - NICe) er m.a. að stuðla að sameiginlegum þekkingarmarkaði á Norðurlöndum, aukinni nýsköpun og samkeppnishæfara atvinnulífi. Stofnunin vinnur að því að Norðurlöndin verði hindrunarlaus innri markaður fyrir frjálsan flutning þekkingar, hæfni, hugmynda, fjármagns, fólks og afurða. Lögð er áhersla á að styrkja samkeppnishæfni Norðurlandanna með því að byggja þau upp sem eina samstæða heild.

NOS-nefndir og NCoE

Vísindaráðin á Norðurlöndum hafa með sér samstarf á fjórum helstu fagsviðum grunnvísinda í svokölluðum NOS-nefndum (Nordisk Samarbejdsnævn), á sviði hugvísinda og félagsvísinda (NOS-HS), læknavísinda (NOS-M) og náttúruvísinda (NOS-N). Nefndirnar ræða stöðu og þróun vísindamála á Norðurlöndum og samstarfsmöguleika hver á sínu sviði.


  • Rannís