Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Alþjóðastarf » Styrkir til rafrænnar stjórnsýslu

Citizen-Centric eGovernment Services 2011

Sex íslenskir aðilar hljóta 154 milljónir til þróunar rafrænnar stjórnsýslu

Gengið hefur verið frá úthlutun sex þróunar- og rannsóknastyrkja á sviði rafrænnar stjórnsýslu, samtals um 154 m.kr.

Um er að ræða styrki úr sameiginlegum rannsóknasjóði, Citizen-centric eGovernment Services, á vegum Rannís, NordForsk, Vinnova í Svíþjóð og ráðuneytis efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi. Íslensk fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélag, samtök og háskólastofnun eiga aðild styrkjunum, ásamt sænskum og eistneskum samstarfsaðilum. Nokkrir samstarfsaðilar koma frá öðrum Norðurlöndum, en án styrkja frá sjóðnum.

Fjölbreytt verkefni
Íslensku styrkþegarnir eru: Þjóðskrá Íslands, Strætó bs.og íslensk íþróttasamtök, Íbúar, sem er sjálfseignastofnun í samstarfi við Reykjavíkurborg, Mannvirkjastofnun Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og IDEGA, sem tekur þátt í tveimur verkefnum, þar af öðru í samstarfi við Reykjavíkurborg. Átján umsóknir bárust og hlutu sex verkefni styrk.

Markmið styrkjanna er að stuðla að þróun frumgerðar að nýrri opinberri rafrænni þjónustu eða að þjónusta sem er fyrir hendi er verði bætt verulega með þarfir borgara og samfélags í huga. Verkefnin sem fengu styrk eru fjölbreytt; þróun lýðræðishugbúnaðar, heildarkerfis fyrir aðgang borgara að rafrænni þjónustu (Citizen E-hub), þróun kerfis sem gerir aðgang almennings að þjóðskjalasöfnum (Cultural heritage) mögulegan, þróun kerfis til bilanatilkynninga og kvartana með farsíma- og tölvutækni, þróun rafrænna umsókna og úthlutana byggingaleyfa og loks birting lýðfræðilegra upplýsinga fyrir almenning á gagnvirku landakorti. Í hverju verkefni skal a.m.k. vera einn aðili frá hverju samstarfslandanna þriggja, Íslandi, Svíþjóð og Eistlandi, og einnig er í hverju verkefni a.m.k. einn fulltrúi opinberrar stjórnsýslu, einn frá rannsóknastofnun eða háskóla og einn frá fyrirtæki. Alls eru um fjörutíu samstarfsaðilar í verkefnunum sex.

Framhald styrkja frá 2010
Um er að ræða sjálfstætt framhald styrkja sjóðsins sem á árinu 2010 veitti 50 m.kr. til fimm þróunarverkefna sömu landa; um aðgang almennings að tölulegum upplýsingum hagstofa, að skjölum opinberra skjalasafna, um rafræna heilbrigðisþjónustu, rafrænar umsóknir um byggingaleyfi og heildarkerfi aðgangs borgara að rafrænni þjónustu (Citizen E-hub). Íslensku styrkþegarnir árið 2010 voru SKÝRR, IDEGA, Hagstofan, Mannvirkjastofnun og Þjóðskjalasafnið.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Margrét S. Björnsdóttir Háskóla Íslands, en hún situr í stjórn verkefnisins fyrir hönd Rannís.


Rannsókna- og þróunarstyrkir að upphæð kr. 154 MKR til rafrænnar stjórnsýslu
Umsóknarfrestur 4. október 2011

Fyrirtæki, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og háskóladeildir geta nú í annað skipti sótt um rannsókna- og þróunarstyrki í þessa áætlun sem er samstarfsverkefni  RANNÍS, VINNOVA í Svíþjóð, ráðuneyti efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi og NordForsk.

Markmið áætlunarinnar er að þróuð verði frumgerð að nýrri opinberri rafrænni þjónustu, eða að þjónusta sem er fyrir hendi er verði bætt verulega með þarfir borgara og samfélagsins í huga. Í hverju verkefni skal vera amk. einn aðili frá hverju samstarfslandanna þriggja (Eistlandi, Íslandi og Svíþjóð). Eingöngu fulltrúar þessara landa verða styrktir, en þátttakendur í verkefninu mega vera frá öllum Evrópuríkjum. Í hverju verkefni verða einnig að vera amk. einn fulltrúi opinberrar stjórnsýslu, einn frá rannsóknastofnun eða háskóla og einn frá fyrirtæki.

Til úthlutunar eru 8,3 milljónir sænskra króna, að jafnvirði um 154 milljóna íslenskra króna. Reiknað er með að 4-6 verkefni hljóti um 2 milljónir sænskra króna í styrk. Lengd verkefna getur verið frá 12 upp í 36 mánuði. Umsóknafrestur er til 4. október nk.

Um er að ræða framhald verkefnis sem á þessu ári styrkti fimm baltnesk-norræn þróunarverkefni; um aðgang almennings  að tölulegum upplýsingum hagstofa, að skjölum opinberra skjalasafna, um rafræna heilbrigðisþjónustu, rafrænar umsóknir um byggingaleyfi og heildarkerfi aðgangs borgara að rafrænni þjónustu ( Citizen E-hub). Íslensku styrkþegarnir voru; SKÝRR, IDEGA, Hagstofan, Mannvirkjastofnun og Þjóðskjalasafnið.

Áhugasömum aðilum er bent á að lesa vel texta um tilgang, æskilegar afurðir og hvaða þættir eru styrktir áður en umsóknarundirbúningur hefst. Skjalið má nálgast hér.

VINNOVA sér um umsýslu áætlunarinnar. Nánari upplýsingar hér.

Tengiliðir sem aðstoða við að finna samstarfsaðila í viðkomandi landi eru: 

Ísland: Margrét S. Björnsdottír, University of Iceland/RANNIS msb@hi.is Tel: + 35 45254928

Svíþjóð: Madeleine Siösteen Thiel, VINNOVA,  
madeleine.siosteen-thiel@VINNOVA.se  Tel: + 46 8 473 3142

Eistland: Katrin Hänni, Ministry of Economics and Communication, Katrin.hanni@riso.ee Tel: + 37 26397604  

Hjá VINNOVA eru einnig til aðstoðar:
Anna Bjurström:  Anna.bjurstrom@VINNOVA.se  Tel: + 46 8 4733089
Johan Lindberg:  Johan.lindberg@VINNOVA.se  Tel: + 46 8 473 6453
Annie Palm, administrative support:  Annie.palm@VINNOVA.se Tel: + 46 8 4733037


  • Rannís
<